samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Hérna ræðum við samgönguáætlun enn þá enda margt sem þarf að ræða. Í þessu innleggi mínu finn ég mig knúna til að ræða enn og aftur ferjumálin á Breiðafirði. Ferjumálin yfirhöfuð er mjög brýnt að leysa, ekki bara á Breiðafirði. Eins og ég hef áður komið inn á í þessari umræðu um samgönguáætlun finnst mér vandinn vera að dýpka, það er það sem ég ætla að koma inn á hérna. Nú hefur nefnilega verið ákveðið að taka Baldur úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð í þriðja sinn á skömmum tíma. Eins og þetta kemur mér fyrir sjónir og það sem ég hef heyrt er áætlað að skipið verði frá siglingum í allt að þrjár vikur. Við erum að tala um allan júnímánuð.
Í þessu samhengi er áhugavert að lesa fréttatilkynninguna á vef innviðaráðuneytis, með leyfi forseta:
„Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní.“ — Ég endurtek: Báðar ferjurnar munu sigla. — „Þetta fyrirkomulag verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní.“ — Það vita náttúrlega allir að svo verður ekki. — „Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar.“
Við vitum það, herra forseti, að Særún siglir ekki frá Stykkishólmi til Brjánslækjar þannig að þetta þýðir verulega skertar samgöngur. Þetta skip getur ekki annað því sem Baldur öllu jöfnu gerir. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Vegna mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni var talið nauðsynlegt að varaskipið Baldur bættist við ferjuþjónustu til Eyja á þessu tímabili. Miklir flutningar eru fyrirhugaðir á fólki og farartækjum, m.a. vegna íþróttaviðburða um helgar.“
Halló. Bæta við? Það eru tvö skip og hvað, hálft skip að sigla á Breiðafirði, bara frá Stykkishólmi til Flateyjar og fer ekki yfir á Brjánslæk. Þetta er fullkomlega óboðlegt. Ég hef heyrt, m.a. þingmenn úr kjördæminu, gera lítið úr þessu ástandi, að þetta sé ekki svona og svona. Maður les í fréttum að það sé uggur í ferðaþjónustunni, sérstaklega á sunnanverðum Vestfjörðum en einnig víða. Það er um að ræða afbókanir yfir allan daginn. Það eru afbókanir við Látrabjarg, það eru afbókanir í Breiðuvík, rekendur Flateyjar eru í vandræðum og svo segja menn bara hérna að svona verði þetta að vera og það þurfi ekkert að hafa áhyggjur af þessu. Menn þurfa að átta sig á því að ferðaþjónustutímabilið á þessum stað er mjög stutt. Þó svo að það sé ekki verið að tala um milljarða tap þá skipta nokkur hundruð þúsund lítil fyrirtæki miklu máli og við þessar afbókanir verða þau að fjármunum. Vegna þessa alvarlega vanda óskaði ég eftir því í dag að umhverfis- og samgöngunefnd yrði kölluð saman eins fljótt og hægt væri til að ræða þessa alvarlegu stöðu sem upp er komin vegna skyndilegs brotthvarfs ferjunnar Baldurs úr þjónustu á Breiðafirði. Menn geta ekki horft fram hjá því hversu alvarlegt þetta er fyrir þetta svæði.