157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:05]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Hún kemur ágætlega inn á þessa forgangsröðun, sem virðist reyndar hálfóljós, þannig að mig langar að spyrja hana aðeins út í þann pott sem hún nefndi að væri mögulega, ef ég skildi rétt, hægt að sækja um fjármagn í. Er hún þá að meina að í samgönguáætlun væru kannski einhverjir fjármunir sem væru eyrnamerktir í þennan pott og svo væri hægt að sækja um, að þetta væri svona viðbót við áætlunina? Eða var hún meira að meina að það væru ákveðin verkefni sem væru í pottinum? Hún fer kannski aðeins betur yfir það með mér.

Svo langar mig að spyrja hana líka hvort henni þyki ekki skjóta svolítið skökku við að það verði mögulega bara þriggja til fimm manna stjórn í innviðafélagi sem muni alfarið stýra því hvaða framkvæmdum verði flýtt, þ.e. af þeim framkvæmdum sem eru á óskalista ríkisstjórnarinnar hverju sinni. Þá er það ekki Alþingi Íslendinga sem á að fá að hafa neitt um það að segja heldur innviðafélag sem á að ákveða að fara í framkvæmdir eftir því hvað er arðbært. Hins vegar kann að vera að það sé þjóðhagslega mun meiri arðbærni í annarri framkvæmd heldur en innviðafélagið vill fara í. Gengur það upp? Nú er, held ég, hv. þingmaður lögmaður, ef ég fer rétt með: Erum við ekki að mati þingmannsins komin á svolítið hættulegt svæði, að taka hreinlega fjárveitingavaldið af Alþingi Íslendinga með svona aðgerð?