157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:09]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Það er auðvitað svolítið vandamál, sérstaklega með þessa ríkisstjórn og kannski sérstaklega með Viðreisn, að þetta virðist vera svo mikill embættismannaflokkur. Það er alveg sama hvaða verkefni þau fá í hendurnar, það fyrsta sem þeim dettur í hug virðist vera að færa vald frá kjörnum fulltrúum og setja það í hendurnar á einhverjum öðrum. Núna er þetta samgönguáætlun sem þau vilja að einhverjir aðrir ákveði en Alþingi og kjörnir fulltrúar og við vitum auðvitað um stóra málið þeirra sem er að færa valdið til Brussel. Það sem ég næ ekki alveg utan um er að nú erum við með dæmið um Betri samgöngur. Við sjáum hvernig það hefur sýnt sig og hvernig er búið að gagnrýna það að þetta er bara fyrirtæki sem virðist á einhvers konar sjálfstýringu og samt hefur samningurinn við ríkið rofnað vegna þess að það sem ríkið lofaði er ekki fjármagnað. Núna ætlum við að fara að endurtaka leikinn með innviðafélagið nema við ætlum að gera það einhvern veginn enn þá stærra og enn þá fjarlægara kjörnum fulltrúum. Nú kann að vera að einhverjir sem eru að horfa hugsi: Er það ekki gott? Þessir pólitíkusar geta aldrei gert neitt rétt. En við verðum þá að átta okkur á því hverjir taka við. Það eru embættismenn og eins góðir og þeir geta verið þá eru þeir misjafnir. Aðalatriðið er að þá er það ekki fólkið í landinu sem hefur val um neina forgangsröðun og það eru ekki kjörnir fulltrúar sem þurfa að standa skil á loforðum sínum heldur er það bara einhver, sem enginn veit hver er. Þess vegna spyr ég: Er þetta atriði er varðar samgönguáætlun ekki eitthvað sem við þurfum að skýra betur áður en hún verður samþykkt?