samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Reynisfjall, ef við komum aðeins inn á það, er stór samgöngutálmi sem mörg hundruð, þúsund manns fara yfir á hverjum degi og hefur staðið til þar mjög lengi að reyna koma göngum í gegnum Reynisfjall sem myndi taka þarna út mjög hættulegan vegakafla og við þurfum að gera það í sátt við samfélagið þar. Forgangsatriði, þú spurðir sérstaklega út í það hvað ég myndi vilja sjá. Það þarf auðvitað að hefja tvöföldun á þjóðveginum frá Selfossi að Markarfljóti. Þarna er hættulegur kafli og þarna keyra, akkúrat eins og hv. þingmaður kom inn á, mjög margir á hverjum einasta degi. Það er hægt að líta á, þannig að ég komi aðeins inn á það, Rangárvallasýslu og Árnessýslu sem eitt atvinnusvæði. Þarna fara ekki bara ferðamenn, heldur einnig íbúar til vinnu og börn á æfingu o.s.frv. Það er verkefni sem ég væri til í að sjá fært ofar. Og svo einnig einbreiðar brýr og þá sérstaklega brúna yfir Jökulsárlón þannig að sómi væri að því samgöngumannvirki. Það eru komnar þungatakmarkanir á núverandi brú. Nú er t.d. verið að ljúka við Hornafjarðarfljótið og áður var hægt að keyra með stórvirk tæki yfir þessa brú en núna þurfa þessi tæki að fara á Seyðisfjörð og taka bát þaðan aftur í bæinn. Þannig að það þarf að útrýma þessum brúm með þungatakmörkunum, svo ég nefni nokkur dæmi.