157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:21]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Herra forseti. Ég tel mikilvægt að fara aðeins betur yfir framsal valds þegar við ræðum þessa samgönguáætlun, því að um það snýst hún. Stærsti hluti þessarar samgönguáætlunar á að snúa að því að einhverjir, sem enginn veit hverjir eru í dag, einhverjir sem eru tilnefndir væntanlega af embættismönnum í ráðuneytunum, munu setjast í stjórn nýs innviðafélags, ráða forstjóra og sameiginlega munu þau ákveða hvaða samgöngumannvirki muni verða að veruleika og hver ekki. Það mun fara eftir einu; arðbærni, hvaða samgöngumannvirki eru arðbærust. Eðlilega mun sjálfstætt starfandi félag, sem á að starfa algjörlega á markaðsforsendum, velja eingöngu eftir því. Það er hlutverk stjórnarmanna í þessu félagi. Þess vegna er mikilvægt að Alþingi Íslendinga hafi aðkomu að forgangsröðun verkefna vegna þess, ég fór yfir það hér í andsvari áðan, að við vitum nú þegar að framkvæmdir geta verið arðbærar og samfélagslega mjög arðbærar. Svo getum við verið með framkvæmd sem er enn þá arðbærari fjárhagslega en ekki eins arðbær þegar horft er á heildarmyndina fyrir samfélagið. Það er mikilvægt að stjórnvöld horfi á heildarmyndina. Stjórnarmenn í þessu félagi munu aldrei horfa á þessa heildarmynd vegna þess að það fer gegn hlutverki innviðafélagsins.

Í samgönguáætlun og í frumvarpi um innviðafélag er skýrt kveðið á um að innviðafélagið eigi að vera sjálfstætt, að pólitíkin megi ekkert koma nálægt því og þetta eigi að vera að danskri fyrirmynd, t.d. að fyrirmynd fyrirtækisins Sund & Bælt sem er reyndar 100% í eigu danska ríkisins. Þetta innviðafélag getur verið með dótturfélag í eigu fleiri en ríkisins. Það sem er hins vegar ekki nefnt í þessu frumvarpi er að forstjóri Sund & Bælt og fleiri hafa farið vel yfir hver ástæðan fyrir árangrinum er. Ein meginástæðan fyrir þessum mikla árangri, að geta farið í þessi stóru samgöngumannvirki og flýtt framkvæmdum, er að þegar félagið var stofnað var lagt mikið upp úr því að ná breiðri pólitískri sátt. Það var mikil sátt um í hvaða framkvæmdir yrði farið og hvernig innheimtan yrði, hvenær henni yrði hætt o.s.frv., kannski svipað og með Hvalfjarðargöngin, sem voru mjög vel lukkuð framkvæmd. Færeyingar notuðu það til að styðjast við sínar áætlanir í kjölfarið. Hins vegar á að fara hér algerlega öfuga átt. Það á ekki að gera eins og í Danmörku, að ná þessari sátt, heldur á að eyðileggja verkefnið að einhverjum hluta fyrir fram.

Nú held ég að flestir séu sammála um ágæti innviðafélags. Ég er alla vega mjög spennt fyrir innviðafélagi. Ég er þó mun minna spennt fyrir því núna heldur en áður þegar ég veit hvernig það á að virka, vegna þess að við viljum fá góða fjárfesta að verkefninu. Við viljum fá góða fjárfesta að borðinu sem koma með þekkingu. Það sem þeir vilja alls ekki er að hér ríki pólitísk ósátt um framkvæmdir. Það er óþarfi hjá ríkisstjórninni að fara þessa leið, það er óþarfi hjá hæstv. ríkisstjórn að keyra þetta í gegn í ósætti. Af hverju ekki að fara, eins og þau hafa sjálf boðað, að fyrirmynd danska félagsins, Sund & Bælt, þar sem það var alveg skýrt að það var hlutverk danska þingsins að ákveða í hvaða arðbær verkefni ætti að fara, hver væri forgangsröðunin. Og svo var það félagsins að fjármagna og keyra málið áfram. Það er góð hugmyndafræði og þannig ættum við að gera þetta vegna þess að stjórnmálin geta horft á heildarmyndina, þ.e. kjörnir fulltrúar sem eru að fara að vilja fólksins í landinu.