samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Í fyrstu ræðu minni hérna fyrr í dag fór ég aðeins yfir stóru myndina varðandi yfirlýsingar meiri hlutans sem yfirleitt eru í hástöfum af þeirra alkunna lítillæti um að hér sé um að ræða fullfjármagnaða samgönguáætlun og algerlega nýtt blað og loksins eigi að fara að ræsa vélarnar. Ég benti á að svo væri ekki og einnig að meiri hlutinn hefur á þessu rúma eina og hálfa ári sem hann hefur starfað hækkað gjöld, sérstaklega á fyrirtæki á landsbyggðinni, um 18 eða um 15 milljarða, getum við sagt, hækkun á veiðigjöldum upp á 7,5 og vörugjöld upp á 7,5. Allt átti þetta að fara í samgöngur á landsbyggðinni af því að fjármunirnir væru að koma að stóru leyti þaðan og 3,3 til viðbótar vegna hækkunar á kílómetragjaldinu, sem sagt 18,3 milljarðar. En hækkunin er kannski 7–8 milljarðar til framkvæmda á vegakerfinu og þeir 7 milljarðar fara í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem sagt hingað á höfuðborgarsvæðið en ekki út á land, þannig að það er engin aukning þangað.
Ég benti á að það væri auðvitað ekki fullfjármagnað þegar meiri hlutinn í nefndarálitinu leggur til alls konar hluti og vonast til að svokallað innviðafélag verði stofnað og geti með einhverjum hókus-pókus hætti tekið verkefnin þar yfir og þá skapist svigrúm í það sem meiri hlutann og okkur öll langar til að gera hérna inni en er auðvitað ekki fjármagnað. Ég benti líka á við fyrri umræðu þessarar áætlunar, og reyndar gildir það í fjármálaáætlun og fjárlögum, að hér vantar til að mynda varasjóð í samgöngumálum sem gæti verið 250–300 milljónir á ári miðað við það sem hefðbundið var. Þeir fjármunir gætu nýst í alls konar hluti sem koma óvænt upp á, sem gerist jú, en í nefndarálitinu til að mynda er talað um ekjubrú á Herjólf sem hugsanlega væri hægt að fjármagna ef innviðafélagið yrði til og tæki eitthvað af þessum verkefnum.
Ég nefndi í ræðu minni að ég ætlaði að fara aðeins yfir flugvellina og ástæðan er sú að við skoðun á þingsályktunartillögunni þegar hún kom fram bar ég hana saman við fyrri samgönguáætlun. Mér sýnist að hugmyndafræðin um varaflugvallargjaldið, sem hugsunin var að færi í uppbyggingu á alþjóðaflugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum og í Reykjavík, það vantaði á tímabilinu um 5 milljarða sem núverandi meiri hluti og ríkisstjórn væri að taka af varaflugvallargjaldinu og skila ekki í uppbyggingu á varaflugvöllunum, reyndar 4 milljarða. Ef við uppreiknum einhverja vísitölu upp á 11% miðað við verðbólguna er ekki ósennilegt að það séu nær 5. Til að mynda átti uppbygging á flugstöðinni í samgönguáætluninni, sem ekki var samþykkt en þessi er byggð á, að nema 1,7 milljörðum á árunum 2024, 2025, 2026. Núna eiga hlutirnir að gerast á árunum 2031–2040 og vera bara 1,2 milljarðar.
Mér sýndist einnig að uppbyggingin á nýrri akbraut og flughlaði á Egilsstöðum ætti að kosta rúma 4 milljarða á þessu tímabili, mun seinna heldur en var í fyrri áætlun, en í fyrri áætlun var áætlunin 8 milljarðar. Þar munar alveg 4 milljörðum. Allir aðrir flugvellir hafa hingað til verið byggðir upp og þjónustaðir og reknir með svokölluðum þjónustusamningi sem ráðuneytið hefur gert við Isavia. Mér sýnist að þar séu meiri hlutinn og ríkisstjórnin að taka á þessu tímabili nærri 2 milljarða sem fara þá ekki í flugvellina, þannig að allt í allt erum við að tala um 7 milljarða, sem sagt varaflugvallargjaldið og þjónustugjaldið sem er verið að draga úr og halda eftir í ríkissjóði. Svo segir þessi sami meiri hluti að hér sé verið að ræsa vélarnar og hér séu tímamót og hér sé allt að fara að gerast og þetta sé fullfjármagnað, en vill taka 7 milljarða, að mér sýnist, út úr þessu. Ég nefndi þetta í andsvari við hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson og fór í kjölfarið og ræddi við ráðherrann og átti þess vegna von á því að í meirihlutaálitinu og í nefndarvinnunni myndi þetta eitthvað vera útskýrt, en því er ekki að heilsa.
Svo langar mig að nefna hérna að það sama gildir í raun og veru um Hafnabótasjóð sem hefði einnig þurft á meiri fjármunum að halda. Í samanburði við samgönguáætlunina sem var lögð fram 2023 — og þessi á að vera í meginatriðum sú sama — sýnist mér að í þessari áætlun skeiki í það minnsta 3 milljörðum sem vantar upp á að það séu settir sömu fjármunir í Hafnabótasjóðinn eins og var í þeirri áætlun og aftur er ekki fjallað mikið um það í meirihlutaálitinu hvernig eigi að takast á við það.
Eins og vanalega þegar maður er kominn á fullt í þessa umræðu langar mig bara að benda á að í Hafnabótasjóðnum er verið að styrkja hafnir í samstarfi við sveitarfélögin hringinn í kringum land. Það er mikil eftirspurn og þörf eftir því að stækka hafnirnar mjög víða. Oft og tíðum eru sveitarfélögin búin að forgangsraða sínum fjármunum til þessa en síðan þurfum við að bíða eftir því að ríkið fjármagni sinn hluta. Þetta getur þýtt að það verði seinkun á alls konar uppbyggingu, ég tala nú ekki um hluti eins og rafvæðingu hafna, verkefni sem við vorum að fjalla um í Evrópuinnleiðingu þar sem á að vera búið fyrir 2030 að gera alls konar hluti, sem ég held að megi fullyrða að við munum aldrei ná að gera. Ég hef áhyggjur af því að hér eigi að innleiða það inn í EES-samninginn án þess að við séum með einhverjar undanþágur frá því sem mér sýnist að alla vega ríkisstjórnin ætli ekki að standa við að uppfylla.
Varðandi innanlandsflugið vil ég líka segja að það er algjör forsenda, þegar varaflugvallargjaldið væri lagt á, að það gjald færi til uppbyggingar á alþjóðaflugvöllum, á varaflugvöllunum, en ekki verið að nota þá fjármuni í eitthvað annað. Þegar ég nefni hér að það vanti 5 milljarða, sýnist mér, í þessa samgönguáætlun sem var og þessa samgönguáætlun sem meiri hlutinn stendur nú hér fyrir, er það áhyggjuefni. Ef þeir peningar hefðu farið yfir í hina innanlandsvellina sem þjónustusamningurinn á að — þá hefðu menn getað sagt: Ókei, þetta fer þá alla vega í flugvelli. En þar virðist líka verið að taka skerf af sem nemur einhverjum 2 milljörðum á tímabilinu.
Á þessum síðasta tíma mínum langar mig að segja nokkur orð um sjóvarnir. Sjóvarnir eru vaxandi verkefni í samgöngumálum og eiginlega er það það stórt og vaxandi verkefni í mínum huga að sjóvarnir ættu ekki að vera hluti af samgönguáætlun, heldur ættu sjóvarnir að verða hluti af einhverjum hamfarasjóði þar sem ofanflóðasjóður og einhverjir fleiri hlutir væru inni og við værum í raun og veru að horfa til einhverra 50 ára, hvernig við ætlum að byggja upp sjóvarnir hér, sérstaklega á vestanverðu landinu, en líka víða hringinn í kringum landið. En það er jú þekkt að landið er svona aðeins að sporðreisast. Sjávarhæðin er að hækka og veðrin fara versnandi þannig að það er algengara að við verðum fyrir tjóni ef við bætum ekki verulega í. Þarna held ég að við séum að tala um það stórar fjárhæðir að það sé fráleitt að halda þessu verkefni inni í samgönguáætlun, inni hjá Vegagerðinni, sem einhverju litlu sætu sjóvarnaverkefni, enda hefur það sýnt sig að þær varnir eða þau verkefni sem þar koma eru allt of fá og það fást allt of litlir fjármunir eftir því.
Margar umsagnir komu um þetta mál til nefndarinnar og það eru einhver 10–15 verkefni sem njóta framlags og eru jafnvel áfangaskipt því að þau eru miklu stærri en raun ber vitni. Ég held að þarna þurfum við svolítið að fara að horfa upp á nýtt hvernig við getum framkvæmt þessa hluti og ég held að þessi leið sem við erum að fara sé ófær til lengri tíma. Við ættum að skoða það að setja sjóvarnir í annan farveg (Forseti hringir.) og horfa til lengri tíma með möguleika á stærri fjárframlögum og uppbyggingu hvað þetta varðar.