157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:43]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans góðu ræðu. Mig langar aðeins að eiga orðastað við hv. þingmann um ferjur og boðaða ferjuáætlun. Sú staða fór ekki fram hjá landsmönnum, sú ólíðandi staða og bagalega staða sem var uppi núna í siglingum og samgöngum Vestmannaeyinga með Landeyjahöfn og ástandið á Herjólfi o.s.frv. Á opnum fundi samgöngunefndar kom hæstv. samgönguráðherra og talaði fyrir því að hann vildi sjá fyrir sér að í rauninni yrði nýr Baldur systurskip Herjólfs og gæti þá stokkið inn ef Herjólfur bilar. Nú er það samt þannig, eins og ég held að hv. þingmaður hafi nefnt í fyrri ræðu sinni, að það er eitt að búa til einhverja ferjuáætlun, en það eru engir peningar í ferjur. Nýr Baldur er ekki á áætlun fyrr en 2036. Nýr Sæfari, Grímseyjarferjan, er ekki á áætlun fyrr en 2031 og Vegagerðin hefur bara sagt: Ja, það eru engir peningar í ferjuna. Svona ferja er ekki hilluvara. Það þarf að hanna hana og smíða hana. Það tekur þrjú, fjögur ár sem þýðir þá að þetta þyrfti að byrja bara fljótlega ef hún á að koma 2031. En það er líka bara að játa að það eru engir peningar í ferjur þannig að þetta er bara eitthvað óskaártal Vegagerðarinnar, hvort sem það er ferjan til Grímseyjar eða ferjan í umdæmi hv. þingmanns, Herjólfur. Mig langar eiginlega að spyrja og fá kannski að heyra aðeins hvað hv. þingmanni finnst í rauninni um að hér sé verið að tala (Forseti hringir.) um ýmislegt en það fylgja engir fjármunir.