157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:50]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans ræðu. Það var nú kannski sá hluti ræðunnar sem fjallaði um varaflugvallargjaldið sem ég var svona mest að velta fyrir mér og hafi ég skilið hv. þingmann rétt eru þetta u.þ.b. 5 milljarðar kr. sem í raun og veru má segja að séu í mínus, þ.e. minni heldur en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir, og 4 milljarðar í flugvöllinn á Egilsstöðum á seinna tímabili. Ef ég hef skilið hv. þingmann rétt er það 50% samdráttur frá því sem upphaflega hafði verið áætlað. Þetta er allt gert undir þessum frösum „Látum verkin tala“ og „Ræsum vélarnar“ og þetta allt saman. Við kunnum orðið alla þessa frasa, það er búið að tyggja þá svo oft. Þetta lítur, hvað varðar flugvellina, ekki glæsilega út fyrir Norðvesturkjördæmi. Varaflugvellirnir eru báðir staddir í því kjördæmi og mig langar kannski að beina spurningu til hv. þingmanns úr því að við erum á annað borð komnir inn í flugvallarmálin. Það er líka bara mjög vond þróun að eiga sér stað með minni flugvellina. Það er ekki bara að við séum að glíma þar við að ekki fáist styrkir frá ríkinu til að halda opnum ákveðnum leiðum — ég get nefnt Húsavíkurflugvöll — heldur er meira að segja ekki verið að sinna viðhaldi á mannvirkjum eða völlunum sjálfum þannig að það verður þá væntanlega stórátak að koma þessu kerfi í gang aftur. Ég hefði áhuga á að vita hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér þróunina í þeim efnum, ekki síst ef þessi ríkisstjórn sem nú situr heldur velli út kjörtímabilið, því að ég sé ekki betur, hv. þingmaður, en að það séu að hrannast upp viðhaldsverkefnin og það sé verið að búa til nýja innviðaskuld (Forseti hringir.) sem þessi ríkisstjórn sagðist einmitt vera mætt til að taka á.