157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:53]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt, sem hv. þingmaður hafði eftir mér, að mér sýnist að á þessu 15 ára tímabili vanti 5 milljarða af því fyrirhugaða varaflugvallargjaldi sem átti að renna til uppbyggingar á alþjóðaflugvöllunum. Það er ekki að skila sér, það er sem sagt farið í hítina. Það er mikilvægt að varaflugvallargjaldið sem notkunargjald skili sér til að viðhalda greiðsluvilja, til að menn séu sammála því, af því að þegar það var lagt á sá ég fyrir mér að við værum komin með fínt kerfi, þ.e. varaflugvallargjaldið gæti séð um uppbygginguna á varaflugvöllunum, alþjóðaflugvöllunum, og síðan var þjónustusamningur, sem við myndum ekki skerða heldur bara viðhalda, sem var upp á einhverja 2,5 milljarða, að mig minnir, við Isavia innan lands um uppbyggingu og viðhald á hinum völlunum. Áður en þetta gerðist voru nefnilega hugmyndir frá Isavia innan lands um að einmitt loka Húsavík, hætta viðhaldi á flugstöðinni í Vestmannaeyjum og loka þessu og loka hinu sem hefði haft gríðarlegar afleiðingar og hreinlega neitaði ég því að það yrði gert vegna þess að innan fárra ára koma hingað rafmagnsflugvélar. Það er verið að prófa bæði 19 sæta vélar og eins 30 sæta vélar og þær vélar munu geta flogið á alla þessa velli með mun hagkvæmari hætti. Þess vegna er svo mikilvægt að viðhalda flugvallarkerfi landsins eins og það er í dag á öllum flugvöllum.