samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég held að þessi klukka sé bara í takt við samgönguáætlun. Það er hvorki hægt að treysta klukkunni né áætluninni. En mig langar í seinni spurningunni hér að velta upp með hv. þingmanni því hversu alvarlegt það er þegar eru gerðar svona breytingar tiltölulega fyrirvaralaust, eða fyrirvaralítið í það minnsta, eins og hv. þingmaður kom inn á með áætlanir er varða Hafnabótasjóð. Öll þessi sveitarfélög sem þarna um ræðir eru búin að gera sínar áætlanir í takt við það sem var búið að gefa í skyn að stæði til, þannig að þetta er ekki bara ríkisstjórnin sem á eitthvað þarna undir og getur bara sagt: Við ætlum að bíða með þetta og færa þetta. Það hefur áhrif á sveitarfélögin sjálf. Nú er það auðvitað mismikið þar sem þarf tvo til. En mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvernig sér hann fyrir sér að sveitarfélögin geti brugðist við með öðru móti en hreinlega að fresta bráðnauðsynlegum framkvæmdum í hafnarbótum?