157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:57]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Ég ætla að koma aðeins inn á hafnir í okkar kjördæmi, Suðurkjördæmi, sérstaklega Landeyjahöfn og Vestmannaeyjahöfn. Eins og við öll þekkjum hérna í þessum sal og landsmenn eflaust líka lömuðust samgöngur milli lands og Eyja, eins og hefur verið komið inn á í þessari pontu ítrekað. Það var m.a. vegna þess að ekki náðist að dýpka höfnina nógu mikið. Það eru engir fjármunir, eða litlir, sem renna til Landeyjahafnar og Vestmannaeyjahafnar í þessari samgönguáætlun. Svo erum við einnig með langa strandlengju allt frá Vogum og að Höfn í Hornafirði þar sem eru margar hafnir og misstórar og ég væri til í að sjá þessar hafnir, a.m.k. einhverjar, stækka þannig að við hefðum almennilegar stórskipahafnir, sérstaklega til útflutnings. Mér finnst framtíðarsýnin vera lítil í þessum málum eins og í svo mörgum öðrum í þessari áætlun. Ég er forvitin að vita hvernig hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson sér þessi mál fyrir sér í kjördæminu, hvaða forgangsröðun fjármuna hann vill og hvernig hann myndi vilja sjá þennan málaflokk stækka og þróast og þá hvernig ætti að forgangsraða í hafnamálum í okkar góða kjördæmi.