157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:02]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir svarið, hv. þingmaður. Ég ætla aðeins að fara í mínu seinna andsvari á aðrar slóðir þar sem ég veit að hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson er mikill hestamaður. Í minni ræðu hér áðan kom ég aðeins inn á uppbyggingu á reiðvegum. Ég efast ekki um að hann fer í hestaferðir, reiðtúra og sleppitúra á sumrin og mun fara í sumar. Nú á að fara að móta stefnu um þessa reiðvegi. Hvernig sér hv. þingmaður þessa stefnu fyrir sér og hvar er mikilvægast að forgangsraða fjármunum í þessi verkefni? Ég veit a.m.k. fátt meira pirrandi en að reka heilan rekstur á þjóðvegum Íslands þannig að ég væri mjög til í að sjá þessa vegi byggjast upp hér í náinni framtíð.