157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:03]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, reiðvegir eru mikilvægir og það er mikilvægt að komast í útreiðartúra. En við förum ekki langt á meðan við erum hér. Þegar ég tók við 2017 sem samgönguráðherra minnir mig að stuðningur til reiðvega hafi verið 50 milljónir á ári. Við hækkuðum það í tveimur áföngum, held ég, í næstu samgönguáætlun og ég held að það sé búið að tvöfalda það, að það séu um 100 milljónir í dag, sem eru ekki miklir peningar sem fara hringinn í kringum landið. Í samstarfi hestamannafélaganna við viðkomandi sveitarfélög hafa menn kannski getað tvöfaldað þetta og svo með einhvers konar sjálfboðavinnu hafa menn getað gert ótrúlega mikla hluti úr lágum fjárhæðum. Það er mikilvægt að reyna það sem hægt er til að koma svona reiðvegum, reiðleiðum frá þjóðvegunum þar sem er mest umferð. Það kallar á skipulag hjá viðkomandi sveitarfélagi eða sveitarfélögum og jafnvel fleiri en einu hestamannafélagi. Þar sem þetta hefur tekist best til hefur þetta tekist alveg frábærlega. Annars staðar enda menn á því að gera reiðveg meðfram þjóðveginum, meðfram hringveginum, með tilheyrandi áframhaldandi hættu. Þó að það sé vissulega reiðvegur þá getur þú ekki treyst því að allir hestarnir í leiðinni taki ekki upp á því að hlaupa upp á veg, eins og við þekkjum.