samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Ég ætla að byrja á því, í ljósi þess að ég var að hlusta hér á orðaskipti hv. þingmanna um reiðvegi og reiðvegafé, að blanda mér aðeins inn í þá umræðu í upphafi þessarar ræðu og varpa ljósi á að það er lækkun núna í reiðvegafé; ekki bara krónutöluleg, það er bein krónutölulækkun, heldur er það líka lækkun ef litið er á það út frá þessum u.þ.b. 100 milljónum sem þetta var komið í. Það er ekki vísitöluþróun í þeirri krónutölu og það er í eðli sínu lækkun, en ofan á þá lækkun kemur svo beinhörð lækkun í peningum. Ég hygg að þetta séu um 90 milljónir í dag.
Svo langar mig að fara aðeins inn í þessa umræðu um það að við séum hér með fullfjármagnaða samgönguáætlun. Það voru nú ekkert lítið digurbarkalegar yfirlýsingar þegar ríkisstjórnin kynnti geysilegt vegaátak í uppbyggingu samgöngumannvirkja og sagði það fullfjármagnað, frú forseti. Væntanlega hafa þá landsmenn getað átt von á því að það væri verið að standa við stóru orðin frá því í umræðunni um til að mynda veiðigjöldin síðasta vor. Sú hækkun var m.a. rökstudd með því að hér ætti að fara í geysilegt átak í uppbyggingu samgöngumannvirkja og þetta fé myndi skila sér heim í hérað, frú forseti, þaðan sem gjöldin væru að innheimtast.
Svipuð röksemdafærsla var svo viðhöfð þegar farið var í stórfellda hækkun vörugjalda, gríðarlega mikla hækkun. Bara til að segja frá því, frú forseti, þá var ég fyrir ekki mörgum dögum síðan staddur á Austurlandi og gekk þar inn í bílaumboð og spurði hvernig gengi að selja. Svarið sem ég fékk var að þá, það eru örfáar vikur síðan, þrjár vikur síðan eða svo, hefði ekki einn bíll selst í því bílaumboði á nýja gjaldinu. Það seldust nokkrir bílar sem voru komnir inn, búið var að flytja inn og tolla inn á gamla vörugjaldinu, en þegar ég kom þar um daginn hafði ekki eitt ökutæki selst á nýja gjaldinu.
Frú forseti. Þetta er enn eitt dæmið um að allt sem var sagt í baráttunni í síðustu fjárlögum um þetta skattabrjálæði myndi skila sér og það er að gera það. Það lifir enginn af því, frú forseti, að selja ekki bíl, alla vega ekki þeir sem vinna við að selja bíla. Það sama var uppi á teningnum þegar kom að kolefnisgjaldinu. Það var stórhækkað og rökstutt m.a. með einhverjum loftslagsvinklum, eðlilega, en líka að það yrði að sækja meira fé til skattborgaranna með meiri heimtum. Kolefnisgjaldið hefur nú í tvígang, frú forseti, hækkað sem nemur tugum prósenta.
Eðlilega voru borgararnir farnir að bíða spenntir eftir að sjá samgönguáætlun þar sem þessi undur og stórmerki áttu öll að gerast. En hvað birtist þá? Jú, það kemur góð hugmynd; það kemur hugmynd um opinbert innviðafélag, svokallað C-félag, til að fara með stærstu og dýrustu en jafnframt arðbærustu framkvæmdirnar þar inn í og þar af leiðandi létta á samgönguáætlun að öðru leyti. En hvað þýðir það, frú forseti? Já, og mér láðist að nefna, frú forseti, ég trúi því nú varla upp á sjálfan mig hafandi talað svona mikið um það, að sömu rökin voru líka lögð fram með kílómetragjaldið. Það var til þess að fara í stórfellda uppbyggingu samgöngumannvirkja, algjörlega nauðsynlegt. Þar var bent á að það myndi ekki einu sinni skila sér. Það gjald hefur ekki verið að skila sér með þeim hætti sem ríkisstjórnin gerði ráð fyrir, enda utanumhaldið á þessu flókna kerfi gríðarlega dýrt. Nema hvað, við sjáum svo þetta innviðafélag birtast sem á að leysa hér stærri verkefnin og er í grunninn góð hugmynd. Ég held að það sé skynsamlegt að fara í innviðafélag en þar hins vegar opinberast þessi frasi um fullfjármagnaða samgönguáætlun. Því hvernig á að reka það innviðafélag, frú forseti? Það er reyndar jákvætt, það á að sækja hér fé. Væntanlega kemur eitthvað af erlendum fjárfestum inn í það verkefni en þar kemur enn einn skatturinn. Þannig að núna, frú forseti, keyrum við á ökutækjum á þessu nýja vörugjaldi, á nýásettu kílómetragjaldi, með stórfellda hækkun í kolefnisgjaldi og getum ekki keyrt vegstubbana nema borga sérstaklega líka fyrir hvern og einn.
Frú forseti. Ég er ekki á móti innviðafélaginu og ég styð það. En það er ekki endalaust hægt að bæta við skattana. (Forseti hringir.) Það verður að hverfa frá einhverri skattheimtu á móti þeirri nýju.