157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:10]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Við erum hérna að ræða samgönguáætlun og hér var farið af stað í upphafi með miklar yfirlýsingar um að nú yrði byrjað að bora. Rjúfum stöðnunina, ræsum vélarnar. Það var endalaust af einhvers konar slagorðum. Svo kemur bara í ljós að við byrjum að bora göng en því miður er enginn peningur í göngin. Það finnst enginn peningur. Göngin eru áætluð upp á 21,5 milljarða, þau eiga að fara inn í innviðafélagið en geta ekki farið inn í innviðafélagið af því að ríkið þarf að borga með þeim þannig að það er ekki til peningur í jarðgöng á Íslandi. Það er staðan.

Sama ríkisstjórn og hækkaði skatta og gjöld hér á almenning og fyrirtæki um 30 milljarða í desember er núna að boða innviðafélag þar sem á að rukka veggjöld. Sjálfstæðisflokkurinn er fylgjandi því að veggjöld séu hluti af því að innheimta tekjur til þess að byggja upp samgöngumannvirki, en það á ekki að lækka neina aðra skatta á móti. Það á ekki að lækka vörugjöld á ökutæki, það á ekki að fella niður kílómetragjaldið, það á ekki að lækka kolefnisgjaldið eða að fella þau niður. Nei, veggjöldin eiga að bætast ofan á. Þau eiga að bætast ofan á rekstur ökutækja á Íslandi og auka gjaldtöku og skatttöku af ökutækjaeigendum á Íslandi. Það fer að verða komið að sársaukamörkum og það er alveg ljóst, virðulegur forseti, að í dag eru rukkaðir 78 milljarðar af ökutækjaeigendum á hverju ári.

Þessi samgönguáætlun gerir ráð fyrir því að á hverju ári séum við að fara að eyða 72 milljörðum í samgöngumannvirki. Af hverju þarf þá að hækka skattana? Er það ekki bara til þess að eyða í eitthvað allt annað? Það er ekki verið að eyða þessu í samgöngumannvirki. Það er verið að eyða þessu í eitthvað allt annað sem hefur ekkert með uppbyggingu samgönguinnviða á Íslandi að gera? Það á bara að hækka skatta hér endalaust og fólk á að borga endalaust og ríkisstjórnin telur að hér sé nóg til og meira frammi.

Mig langar, virðulegur forseti, að fara hér aðeins yfir stöðuna á ferjunum. Í ræðum mínum hef ég farið yfir þau vonbrigði sem Austfirðingar urðu fyrir. Ég hef farið hér yfir að í rauninni er gleymda kjördæmið í þessari samgönguáætlun Norðausturkjördæmi og ég tala nú ekki um ef það verður ekki einu sinni byrjað að bora göng.

Þá langar mig aðeins að koma inn á ferjurnar. Grímseyjarferjan Sæfari er orðin gömul. Hún er byggð 1991. Það er kominn tími á að endurnýja Sæfara. Miðað við samgönguáætlun á að endurnýja Sæfara 2031. Þá verður Sæfari fertugur en það eru engir peningar í ferjuáætlun samgönguáætlunar. Þetta eru bara ártöl á blaði, virðulegur forseti, og þeir vita það. Þeir vita það sem þekkja til að þegar á að hanna, bjóða út og smíða skip tekur það mörg ár. 2031 er eftir fimm ár, virðulegur forseti. Samt sem áður er í framkvæmdaáætluninni ekki ein króna í Grímseyjarferju. Það er ekki ein króna í Baldur sem hæstv. samgönguráðherra segir að eigi að taka við eða eigi í rauninni að vera systurskip Herjólfs og koma þá inn. Ekki ein króna. Það á að endurnýja Baldur 2036. Þá held ég að Baldur verði orðinn tæplega fimmtugur, virðulegur forseti.

Svo ég tali nú ekki um þessa 6,3 milljarða sem við erum með hér inni í samgönguáætlun sem hafa í rauninni enga þýðingu af því að af þeim á 2,1 milljarður að fara í framkvæmdir á næsta ári þegar það er útséð og samkvæmt upplýsingum úr innviðafélaginu er Kjalarnesvegurinn ekkert að koma inn núna í haust í innviðafélagið sem þýðir það að það er ekki verið að fara í þessar framkvæmdir árið 2027. Hvað erum við þá að ræða þetta hérna? Hvaða væntingar erum við að búa til, virðulegur forseti, gagnvart fólkinu í landinu með alls konar loforðum um hinar og þessar framkvæmdir sem á svo bara ekkert að standa við? Ég ætla að fá að vitna í hæstv. forsætisráðherra sem sagði í viðtali: Það er ljótt að plata.