157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:26]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð. Ég vil byrja á að taka undir áhyggjur hv. þingmanns þegar kemur að svona lykilsamgönguæðum sem hafa orðið mikilvægar samgönguæðar, kannski miklu hraðar heldur en sveitarfélögin voru að gera ráð fyrir. Þetta dæmi sem hv. þingmaður nefnir er svo gott dæmi um hversu langt eftir á við erum oft þegar við höfum verið að byggja ný hverfi, þegar verið er að fjölga fólki og það nær engan veginn að haldast í hendur við svona lykilsamgönguinnviði, sem geta stundum bara hreinlega verið flóttaleiðir út úr hverfum, það nær einhvern veginn ekki að halda í við það.

En mig langar í þessu fyrra andsvari að koma aðeins að innviðafélaginu og stóru myndinni. Ég hef aðeins farið yfir það hér í dag að það liggur fyrir að verðbólga er að hækka og það liggur fyrir að það er enn þá meiri óvissa fram undan. Nú var verið að hækka stýrivexti í Evrópu. Ég verð að segja að þegar maður horfir á fjármögnun innviðafélags og þegar maður horfir líka á það framlag sem er til samgöngumála þá hef ég ákveðnar áhyggjur af því að miðað við þessar hækkanir verði ekki nóg til ráðstöfunar í þau verkefni sem við erum að horfa á í samgönguáætlun og hvað þá fyrir innviðafélagið. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hún taki undir með mér að þessar hækkanir þýði í raun og veru að hver og ein framkvæmd verði einfaldlega dýrari vegna hækkunar á malbikun, vegna hækkunar olíuverðs o.s.frv. Hvort hv. þingmaður geti tekið undir þessar áhyggjur.