samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, auðvitað er mikil ástæða til að hafa áhyggjur af efnahagsmálum og þá framlagi til samgönguverkefna, eins og bara annarra verkefna í samfélaginu. Það er nokkuð skýrt. Samgönguframkvæmdir, sem annað, hækka náttúrlega og hækka og erfiðleikar í efnahagslífi verða ekki til þess að auðvelda það að verkefni sem við viljum sjá verða að veruleika raungerist.
En mig langar líka aðeins að bregðast við því sem hv. þingmaður byrjaði á að tala um varðandi íbúafjölgun og -þróun. Það er einmitt það sem við höfum verið að horfast í augu við, ekki síst hérna á höfuðborgarsvæðinu, að spár um íbúafjölgun hafa illa staðist og það er miklu meiri fjölgun íbúa en t.d. svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins gerir ráð fyrir. Þar eru samgöngumál undir, öll uppbygging á svæðinu. Þetta helst allt í hendur eins og við höfum verið að ræða. Ástæðan fyrir því að taka upp svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins er ekki síst sú að spár um íbúafjölgun, samkomulagið, eru sprungnar og eru ekki að standast. Fjölgunin hefur farið langt fram úr sér og ferðamannafjöldi og slíkt, þannig að þetta er einhvern veginn allt undir. Og svo, eins og ég hef verið aðeins að koma inn á hérna í þessari umræðu og hef átt skemmtileg samtöl um við nokkra þingmenn, gerir tæknin okkur líka kleift að fara aðrar leiðir í samgöngum og við þurfum að taka tillit til hennar. Við höfum verið að ræða hérna eitt af mínum áhugamálum, sjálfakandi bíla. Það er svo margt sem er að gerast sem við þurfum að taka tillit til í svona svæðisskipulagi þar sem samgöngur eru undir.