157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:31]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir hversu óraunhæf plön um þróun hafa í sjálfu sér verið. Hv. þingmaður nefnir ferðamannafjölda, sem hefur auðvitað margfaldast á Íslandi á tiltölulega stuttum tíma. Það hefur áhrif á þessar daglegu ferðavenjur, t.d. hérna í miðborginni. Ofan á það bætist að við höfum séð 50.000 manns bætast við íbúafjölda á ekki svo löngum tíma, þannig að auðvitað setur þetta allar sviðsmyndir úr skorðum sem, eins og hv. þingmaður kemur inn á, á ekki bara við um samgöngumálin. Þetta tengist öllum innviðum; húsnæðisinnviðum. Allt þetta heildarsamhengi rofnar.

Það er svo áhugavert að skoða 20 ár aftur í tímann og sjá að þá voru ungmenni miklu meira að nota almenningssamgöngur. Í dag, þó svo að við séum að þróast á marga vegu í rétta átt, þá virðist notkun almenningssamgangna ekki hafa aukist. Hluti af því er væntanlega að við höfum ekki fjárfest nægjanlega í þeim. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Núna þegar við erum að horfa inn í næstu 15 ár, telur hv. þingmaður að við séum nógu metnaðarfull þegar kemur að þeim lykilinnviðum sem almenningssamgöngur eru bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og líka sem almenningssamgöngur um landið allt? Erum við nógu framsýn?