samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni annað andsvar. Já, ég held að við séum alveg þokkalega framsýn í þessum efnum og meira að segja mjög bjartsýn. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins, ef ég tek hann sem dæmi, gerir ráð fyrir því að notkun á almenningssamgöngum fari úr 4% upp í 12%, sem er dálítið óljóst hvernig eigi að nást. Það er eitthvað í okkar landi sem virðist vera þess valdandi að almenningssamgöngur eins og við höfum verið að byggja þær upp — það er ágætisstrætisvagnakerfi, eins og hér á höfuðborgarsvæðinu sem ég þekki helst. Það eru náttúrlega margir að nýta sér það á ákveðnum tímum. En eitthvað er þess valdandi að þetta er ekki nógu fýsilegur kostur fyrir marga. Það gæti verið veðurfar þar sem þú einhvern veginn veist aldrei hvernig veður þú ferð út í að morgni og kemur heim í um eftirmiðdaginn, bíðandi úti eftir almenningssamgöngum. Það er dálítið erfitt að bera okkur saman við borgir í Evrópu þar sem er náttúrlega miklu meira fjölmenni og annað veðurfar og slíkt. En af því að við vorum að tala um tæknina þá kom fram í gær hjá einum hv. þingmanni að kannski væri líka — tæknin hefur rutt sér til rúms, ekki bara í farartækjunum sjálfum heldur er unga fólkið frekar að nota hopphjól og nota símana sína til þess að fara á þau og nýta sér þau. Það er tækni. Þarna er unga fólkið frekar að nýta sér þessa tækni heldur en almenningssamgöngur, virðist vera. Kannski hefur þetta ekki alveg verið fyrirséð eða haft með og tekið tillit til þegar þessi bjartsýnu áform um 12% fólks í almenningssamgöngur voru sett.