samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Við getum svo sem rætt þessi samgöngumál nánast endalaust og það er út af fyrir sig áhyggjuefni að það skuli vera svo mikið tilefni til sem raun ber vitni. Við höfum auðvitað, ef við horfum yfir farinn veg, náð ótrúlega miklum árangri í íslensku samfélagi, fámenn þjóð í stóru landi þar sem ansi fáir hausar eru á hvern vegarspotta í samanburði við margar aðrar þjóðir. En við hljótum líka að spyrja okkur hvort við séum á réttri leið með þetta fjármögnunarmódel og annað sem við höfum verið að reyna að ná endum saman með í þessu.
Ítrekað höfum við velt fyrir okkur öðrum leiðum og það nýjasta sem okkur er boðið upp á í þessum efnum er kílómetragjaldið, sem er sennilega einhver sú vitlausasta leið sem við höfum farið, því miður. Það er engin þjóð sem við þekkjum til annars staðar sem við höfum einhver fordæmi frá að leita til varðandi það að fjármagna vegakerfið með þessum hætti. Við eigum ágætisdæmi hér úr PPP-framkvæmdum eða þar sem er farið í einkaframkvæmd, sem eru Hvalfjarðargöngin. Þar byggðist þetta á sérstakri gjaldtöku sem síðan leiddi af sér að göngunum var skilað til ríkisins frá þessu félagi um mitt árið 2018 eftir að búið var að greiða þau upp. Við vorum reyndar líka lengi vel með gjaldtöku á Keflavíkurveginum í gamla daga þegar hann var steyptur. Herinn lagði þennan veg og það var gjaldtaka og gjaldskil í mörg ár. Margir eru búnir að gleyma því. En ég held að við hljótum að þurfa að komast að einhverjum tímamótum í þessu þar sem við setjumst niður og finnum einhverja framtíðarlausn á því hvernig við ætlum að tryggja betur fjármagn til samgöngumála. Það er svo brýnt. Það forðast einhvern veginn allir fílinn í stofunni í þessari umræðu núna. Það er alls staðar verið að boða einhverjar dulbúnar gjaldtökur sem enginn vill kannast við. Hér er skrifað undir höfuðborgarsáttmála þar sem er kveðið hreinlega á um það að stór hluti, vel á annað hundrað milljarða, eigi að greiðast með einhvers konar flýtigjöldum. Það er enginn sem vill kannast við það að vilja ýta þessu í framkvæmd. Nú á að taka þetta til endurskoðunar.
Við erum hér að ræða í tengslum við samgöngumálin eitthvert nýtt innviðafélag sem er svo illa útfært að það er varla hægt að taka það til umræðu. Það er sorglegt vegna þess að almennt er hérna í salnum mikill stuðningur við það að reyna að fara einhverja svona leið og við náum einhverri samstöðu um að fara nýjar leiðir í þessu. En þá kemur þetta algjörlega óútfært og gefur ekkert nema falskar vonir sem hefur allt of mikið verið af í samgönguáætlunum undanfarinna ára. Auðvitað þýðir það síðan vantraust fólksins gagnvart þingi og þeim fyrirætlunum sem við leggjum á borðið þannig að við hljótum að þurfa að fara að líta í spegilinn og segja við okkur sjálf að þetta gangi ekki lengur. Við berum meiri ábyrgð í þessu þingi á þessu mikilvæga máli gagnvart okkar samfélagi að við getum ekki verið með þetta í svona miklum pólitískum ágreiningi og svo uppfullt af fölskum væntingum um hitt og þetta, hinar og þessar framkvæmdir úti um land, hvort sem það eru nú Fljótagöngin, sem eru algjörlega ófjármögnuð og ráðherrann ætlar að byrja að grafa á næsta ári, eða heiðarnar fyrir austan. Ætlum við að fara fjarðaleiðina? Ætlum við að leysa einangrun Seyðisfjarðar með því að byggja brú á milli fjarðanna eða á að fara Fjarðarheiðina? Það er endalaust hægt að tala um þetta.
Svo hefur okkur einhvern veginn mistekist svo oft í framkvæmdum. Við horfum á Hornafjarðarfljótið fara úr því að eiga að vera innan við 3 milljarðar og það endar í 9 milljörðum og einhver Ölfusárbrú sem var hægt að byggja fyrir 5 milljarða, það er verið að byggja hana fyrir 15 milljarða og svona má lengi telja. Við sturtum peningum út um gluggann. Við erum stöðugt í einhverjum bútasaumi í stað þess að geta boðið út hér alvöruverk til lengri tíma á grundvelli alvörufjármögnunar.
Ég kalla eftir því, virðulegur forseti, að við komum okkur saman um einhverja framtíðarsýn í þessu þar sem pólitísk sátt getur ríkt um þetta mikilvæga mál í okkar samfélagi.