mótmæli vegna stöðunnar í Grindavík.
Virðulegi forseti. Nú í hádeginu í dag eru boðuð mótmæli Grindvíkinga sem kalla eftir samtali við ríkisstjórnina um stöðu Þórkötlu og annarra verkefna sem snúa að uppbyggingu í Grindavík. Það hefur verið rík samstaða í þinginu um að láta mál Grindvíkinga ganga vel og mig langar til að beina því til hæstv. forseta að taka vilja þingsins áfram. Sömuleiðis vil ég hvetja hæstv. ríkisstjórn til að kalla til fundar, vera ekki með heilt sveitarfélag að mótmæla hér á Austurvelli, sem ég man ekki eftir að hafa heyrt um áður. Bregðumst við því til að koma í veg fyrir þetta ástand og fundum og finnum leiðir. Það er ríkur vilji þingsins og við skulum passa upp á, virðulegi forseti, að hann komist til skila.
(Forseti (ÞSv): Ósk þingmannsins verður komið á framfæri.)