samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Hér er um langþráðan áfanga að ræða, fyrstu samgönguáætlun sem nær fram að ganga síðan árið 2020. Á fyrsta fimm ára tímabilinu fer 361 milljarður í framkvæmdir. Jafnvel þegar tekið er tillit til verðlagsbreytinga er það 70 milljörðum meira en í tillögu síðustu áætlunar sem dagaði uppi. Við erum að rjúfa kyrrstöðuna í jarðgangagerð, stórauka viðhald á vegum þjóðarinnar, fullfjármagna vetrarþjónustu um allt land, útrýma einbreiðum brúm og fækka malarvegum um mörg hundruð kílómetra, svo fátt eitt sé nefnt. Þá mun nýtt innviðafélag tryggja samfellu í fjármögnun stórframkvæmda og skapa forsendur fyrir fleiri nýframkvæmdum þegar fram í sækir. Þessi áætlun markar ákveðin þáttaskil og er risaskref fram á við fyrir samgöngur á Íslandi.