samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Mig langar að óska bæði þingi og þjóð til hamingju með að vera að afgreiða hér samgönguáætlun í fyrsta sinn síðan árið 2020. Þetta er stór stund í mínum huga, fullt af góðum úrbótum um allt land þó að þörfin sé vissulega meiri. En mig langar líka að nota tækifærið og þakka kærlega mínu góða samnefndarfólki í umhverfis- og samgöngunefnd fyrir frábært samstarf í þessu máli, eins og öllum öðrum málum í vetur, og meiri hlutanum líka fyrir mjög þétt og gott samstarf. Mig langar líka að þakka öllum þeim umsagnaraðilum sem komu með umsagnir. Það bárust 143 umsagnir við málið og ég hlakka til að sjá samgönguúrbætur verða að veruleika um allt land. Við erum að stórauka viðhald, eins og hefur mörgum sinnum komið fram, og þetta er allt saman mjög brýnt. Ég bara ítreka hamingjuóskir mínar til þings og þjóðar.