samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég tek undir orð hv. þingkonu, Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, og er ánægð með vinnu nefndarinnar í þeirri miklu vinnu sem fór fram hér á vorþingi. Ég vil þakka sérstaklega öllum þeim mörgu umsagnaraðilum sem komu fyrir nefndina til að brýna okkur til góðra verka. Ef það er eitthvað sem sameinar alla landsmenn er það þörf á bættum samgöngum og innviðum. Það eru allir sammála um að vilja fá meira og fyrr. Það er okkar að tryggja síðan að hér fari hlutirnir af stað og við getum verið stolt af því að standa vörð um viðhaldið, standa vörð um það að fara áfram í þær vegbætur sem hér eru nauðsynlegar og ég er mjög hamingjusöm með það að koma þessu máli í gegn í dag. Þingflokkur Viðreisnar mun að sjálfsögðu styðja þetta mál og ég hlakka til að tryggja það að við förum af stað áfram veginn.