157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:49]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér erum við að samþykkja metnaðarfulla samgönguáætlun sem inniber mikilvægar framkvæmdir sem eiga eftir að skipta almenning í þessu landi raunverulegu máli. Það er verið að auka fé til samgöngumála, það er verið að auka hér fé til viðhalds vega, það er verið að stoppa í gatið þegar kemur að innviðaskuldinni sem er metin nú á 280 milljarða, en hér erum við að færa viðhald til vega upp í 20 milljarða árlega frá 2027. Þetta skiptir raunverulega máli fyrir fólkið í landinu að þurfa ekki að keyra um á holóttum vegum um allt land. Þetta skiptir svo miklu máli og ég vona að allir hér inni átti sig á hversu mikilvægt þetta er. Ég fagna því að það eigi að endurskoða vinnureglu vetrarþjónustu af því samfélag breytist með bættum samgöngum. Það krefst betri þjónustu þegar fólk fær bættar vegaframkvæmdir. Svo mun auðvitað innviðafélagið verða algjör leikbreytir þegar kemur að samgöngumálum á Íslandi. Þá mun þetta skapa svigrúm innan samgönguáætlunar og þetta er bara virkilega góður dagur fyrir Ísland allt.