157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:51]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að óska hæstv. ráðherra til hamingju með að við séum að afgreiða þetta mál í dag og þakka nefndinni fyrir samvinnuna í þessu máli sem hefur verið einkar góð. Við Framsóknarmenn fögnum öllum samgöngubótum og ég tek undir að það er gleðiefni að við séum að setja meira fjármagn í samgöngumál. Ég held hins vegar að miðað við stórar yfirlýsingar sem hafðar hafa verið uppi hér um hvað ætti að gera þá sé ekki verið að leggja nógu mikið fjármagn í samgöngumál. Þetta er ekki í takt við þær væntingar sem ég held að fólk hafi um allt land. Þannig að það er hvatning til okkar að gera betur, að passa upp á að innviðafélagið, sem er líka mikilvægt tæki, verði að veruleika því að eins og kom fram hjá umsagnaraðilum þá er þörfin gríðarleg og nefndinni var ekki mögulegt að bregðast við ábendingum umsagnaraðila vegna þess að við vorum (Forseti hringir.) ekki með viðbótarfjármagn. Það mun því skipta máli að halda vel á spöðunum. Ég vil að endingu segja að það er leitt að gangaröðin hafi farið úr skorðum. Það er annað mál sem við þurfum að taka alvarlega.