samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hér í afgreiðslu samgönguáætlunar tökum við mikilvægar ákvarðanir varðandi forgangsröðun fjárfestinga í innviðum landsins. Mín hvatning hér er um að við verðum í auknum mæli að horfa til verðmætasköpunar og fjárfesta í þeim svæðum sem skapa þjóðarbúinu mestar tekjur og búa yfir mestum vaxtartækifærum. Þar vil ég sérstaklega nefna Austurland þar sem aðeins 2,9% landsmanna standa undir um fjórðungi vöruútflutningstekna þjóðarinnar. Það eru um 240 milljarðar. Svæðið stendur einnig undir um þriðjungi af orkuframleiðslu landsins. En því miður er Austurland samt algjör afgangsstærð í þessari samgönguáætlun. Ef markmið okkar er aukinn hagvöxtur og sterkari staða Íslands til framtíðar þá verðum við að leggja aukna áherslu á að fjárfesta í innviðum þar sem verðmætin verða til.