samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er góð samstaða um það á Alþingi Íslendinga að fara í átak í samgöngum og það var gleðiefni þegar við sáum fyrirætlanir eins og um innviðafélag og samgönguáætlun. Það er þess vegna dapurt að ríkisstjórnin hafi lagt fyrst og fremst áherslu á slagorð en ekki innihaldið. Við þekkjum það úr innviðafélaginu, sem við munum greiða atkvæði um á eftir, að það er vanbúið og ekki búið að svara þeim fjölmörgu spurningum sem hafa komið fram hjá umsagnaraðilum. Þrátt fyrir stóryrtar yfirlýsingar um að samgönguáætlun sé fjármögnuð þá er langur vegur frá því að svo sé. Það er óheppilegt því að ríkisstjórnin er í góðum færum til að ná samstöðu um þessi stóru mál. En það verður að gera þá kröfu til ríkisstjórnarinnar að hún vandi til verka.