157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum vonbrigði Austfirðinga með þessa samgönguáætlun og vonbrigði íbúa Norðausturkjördæmis með þessa samgönguáætlun. Í þessari samgönguáætlun er hins vegar talað um að það eigi að fara að bora göng en það er samt ekki einni einustu krónu ráðstafað í göng. Þetta er bara tal hér í salnum. Það er enginn peningur í jarðgöng, enginn. Það á líka að fara að greiða hér atkvæði um töflu þar sem eru 6,3 milljarðar sem mögulega, kannski, koma á Kjalarnesvegi og þar á að fara 2,1 milljarður á næsta ári í framkvæmdir sem vitað er. Það verður ekki búið að setja Kjalarnesveg inn í innviðafélagið núna í haust. Það þýðir að hér er verið að tala um framkvæmdir sem var verið að setja á áætlun sem við vitum nú þegar að ekki á að fara í. Þetta er samgönguáætlun hæstv. ríkisstjórnar.