157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:56]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er skýrsla væntanleg frá dönsku verkfræðistofunni DHI vegna úrbóta á Landeyjahöfn. Þessar aðgerðir eru ekki fjármagnaðar í samgönguáætlun sem er verra. Það fjármagn sem ætlað er til Landeyjahafnar er t.d. til að malbika bílastæði og stuðla að landgræðslu, sem er gott og vel. Tengivegapotturinn er lítill sem enginn og dugar skammt, það eru fáir kílómetrar þarna undir og hér hafa verið látin stór orð falla í pontu af hálfu meiri hlutans. En af þessari samgönguáætlun sést að það er ekki verið að ræsa neinar vélar.

Herra forseti. Það væri gaman að sjá smá sannleikskorn í þessum málflutningi meiri hlutans.