samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að hafa gildandi samgönguáætlun í gangi á hverjum tíma. Ég vildi óska þess að stóryrtar yfirlýsingar ráðherrans og meiri hlutans hérna væru sannar. Staðreyndin er sú: Þessi samgönguáætlun er sú sama og var lögð fram á þinginu 2023, fyrir utan það að hér var tekin pólitísk U-beygja í jarðgangagerð sem seinkar jarðgangagerð sem þýðir að verðbólga síðustu ára hefur gert það að verkum að hvert verkefni er 15, 20, jafnvel 25% dýrara sem þýðir að 25% af verkunum aftar í þessari áætlun hefur seinkað. En það sem verra er og er verst að ef við horfum til flugsins þá virðist ríkisstjórnin taka um 4 milljarða, jafnvel 5, af varaflugvallargjaldinu af alþjóðaflugvellinum, af varaflugvöllunum, og færa inn í ríkissjóð og lækka þjónustusamninginn um allt að 2 milljarða á sama tímabili til uppbyggingar annarra flugvalla. (Forseti hringir.) Þá er Hafnabótasjóður vanfjármagnaður þannig að ég myndi spara stórkarlalega yfirlýsingarnar.