samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hér telja þingmenn ríkisstjórnarflokkanna það málinu helst til framdráttar að samgönguáætlun hafi ekki verið samþykkt síðan 2020. Það þarf hins vegar að huga mun betur að efninu en forminu í þessu sambandi og auðvitað sýnist sitt hverjum í þessum þingsal um efni þessarar samgönguáætlunar. Ég fyrir mitt leyti get nefnt það sem þingmaður Reykvíkinga að ég hef gert miklar athugasemdir við þá forgangsröðun og þær hugmyndir sem eru að öllu leyti ófjármagnaðar um verulegar samgöngubætur hér í Reykjavík. Það geri ég líka fyrir hönd Miðflokksins þegar kemur að öðrum stórum framkvæmdum sem menn hafa miklar væntingar til úti um allt land að verði farið í. Þær eru með öllu ófjármagnaðar og málið lagt upp þannig að það er bara treyst á guð og lukkuna í þeim efnum og það er auðvitað óásættanlegt. Í því ljósi mun Miðflokkurinn ekki greiða atkvæði með samgönguáætlun.