157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:01]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er með miklu stolti sem ég tek þátt í því að samþykkja þessa samgönguáætlun. Ég vil óska ráðherra til hamingju. Ég vil líka þakka fyrir frábært starf í nefndinni og þakka framsögumanni sérstaklega fyrir vel unnin störf. Ég held að allur þingheimur og allir flokkar geti séð sín fingraför í þessari áætlun og eigi að vera stoltir. Það skiptir miklu máli að standa saman að langtímastefnumörkun í mikilvægum málaflokkum eins og þessu og ég vona að sama samstaða náist um verkefnið innviðafélags sem, þegar það kemst á skrið, mun skapa svigrúm til að bæta við verkefnum inn á þessa samgönguáætlun. Ég held að ég tali fyrir munn eiginlega allra í þessum þingsal og auðvitað fyrir utan hann líka þegar ég segi að við finnum að það er mikil eftirvænting, metnaður og krafa um auknar innviðafjárfestingar og að greiða niður innviðaskuld og það er það sem þessi samgönguáætlun gerir (Forseti hringir.) og innviðafélagið í samspili við það.