157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:02]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við göngum nú til atkvæðagreiðslu um samgönguáætlun og það er fagnaðarefni að hér sé verið að samþykkja að ráðast í mýmargar framkvæmdir. Þessi samgönguáætlun byggist einmitt á, eins og hefur komið fram hér áður, þeirri samgönguáætlun sem var lögð fram 2023. Munurinn er hins vegar sá að hér er verið að tala um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Þegar betur er rýnt í það er augljóst að svo er ekki. Hér er verið að tala um að það sé verið að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð með því að ráðast strax í að bora göng á næsta ári. Staðreyndin er hins vegar sú að það er verið að framlengja kyrrstöðu í jarðgangagerð, því eina kostinum sem var tilbúinn til útboðs er kastað út af borðinu. Það er tekin pólitísk ákvörðun um að taka önnur göng fram fyrir. Við fögnum auðvitað alltaf allri jarðgangagerð. Hins vegar er það varhugavert þegar við sjáum að samgönguáætlun virkar ekki sem skyldi eins og hugsunin var upphaflega með samgönguáætlun.

En af því að hér hafa hv. stjórnarliðar komið og sagt að vörugjöld, kílómetragjald og veiðigjald myndi allt fara í uppbyggingu samgangna um allt land (Forseti hringir.) og vinna á þessari innviðaskuld þá langar mig að koma því á framfæri að stærsti hlutinn, ef ekki allur hluti viðbótarinnar við þessa samgönguáætlun, fer í samgöngusáttmálann sem er hér á stórhöfuðborgarsvæðinu, (Forseti hringir.) ekki á landsbyggðinni.