samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég vil segja um þessa samgönguáætlun að hún setur öryggi, aðgengi og jöfn tækifæri í forgang. Í fyrsta sinn er sérstaklega fjallað um fatlað fólk í samgönguáætlun og viðurkennt að samgöngur snúist ekki aðeins um vegi heldur einnig um þátttöku fólks í samfélaginu. Ég fagna því að lögð sé áhersla á viðhald og uppbyggingu innviða um allt land, fækkun hættulegra vegkafla og aukið umferðaröryggi. Á bak við hvert alvarlegt umferðarslys eru einstaklingar og fjölskyldur sem bera afleiðingarnar. Ég tel einnig mikilvægt að áætlunin miði að því að jafna aðgengi að þjónustu óháð búsetu og að hún byggist á raunhæfri fjármögnun og skýrri forgangsröðun verkefna. Við eigum að standa við það sem við lofuðum og það er verið að gera hér. Fyrir mér er þetta því ekki aðeins samgönguáætlun heldur áætlun um aukið öryggi, meira jafnrétti og betri lífsgæði fyrir fólk um allt land.