157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:05]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta er góður dagur í dag. Í dag erum við að samþykkja samgönguáætlun og þar með að stíga mikilvægt skref til að efla innviði landsins og bæta samgöngur fyrir fólk um allt land. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir það góða samstarf sem ríkt hefur í meðferð málsins. Margir hafa lagt hönd á plóg; nefndarmenn, ráðherra, starfsfólk ráðuneytisins, sérfræðingar og allir þeir sem sendu inn umsagnir. Sú vinna hefur einkennst af fagmennsku, yfirvegun og vilja til að ná árangri þrátt fyrir ólík sjónarmið. Svona eigum við að hafa þetta hérna á Alþingi.