157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:06]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Okkur var lofað að veiðigjöld, kílómetraskattar og aðrar skattahækkanir ættu að skila sér í bættum samgöngum. Svo er ekki og það sjáum við í þessari samgönguáætlun. Hér er um að ræða algerlega ófjármagnaða samgönguáætlun og forgangsröðun samgönguframkvæmda verður ekki út frá því sem er þjóðhagslega arðbærast og ekki út frá því sem kjörnir fulltrúar hafa lofað kjósendum að yrði í forgangi, nei, heldur á höndum ónafngreindra aðila í óstofnuðu nýju ohf.-félagi. Þetta er því miður séríslensk leið þar sem við ætlum að framselja með þessum hætti vald sem kjörnir fulltrúar hafa í dag til ókjörinna fulltrúa.