157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:07]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Samgönguáætlun á að svara einni einfaldri spurningu: Hvar þarf að framkvæma til að auka öryggi, stytta leiðir, styrkja byggðir og styðja við atvinnu um land allt? Þessi áætlun svarar ekki þessari einföldu spurningu með nægjanlegum hætti. Hér hafa verið stórkarlalegar yfirlýsingar um að samgönguáætlun sé að fullu fullfjármögnuð. Það er einfaldlega rangt. Hér er búið að vera að slá ryki í augu fólks. Varðandi forgangsröðun verkefna hefur hallað verulega á Suðurkjördæmi og ég vil nefna Reykjanesbraut og Vestmannaeyjar sérstaklega. En þegar farið er í aukna skattheimtu og hún er rökstudd með því að það eigi að fara í að vinna á innviðaskuld þá skiptir máli þegar þeir fjármunir eru teknir af fólki að þeir fari í raunverulegar framkvæmdir. Það er ekki hægt að tala um innviðaskuld og hækka álögur og fresta síðan lausnum. Sjálfstæðisflokkurinn vill sjá sterka innviði en það krefst skýrrar forgangsröðunar og ábyrgðar í ríkisfjármálum og hvorugu verðum við vitni að hér.