samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er ljótt að plata og því miður er það raunin í þessu tilfelli hér þegar við erum að ræða um samgönguáætlun. Samgöngumál eru mikilvægasta byggðamálið á Íslandi í dag. Mikilvægar samgöngur skipta öllu fyrir íbúa á landsbyggðinni og þær væntingar og vonir sem er búið að gefa hér í ræðum og riti varðandi framtíðina í uppbyggingu samgangna á Íslandi frá hv. þingmönnum stjórnarflokkanna eru einfaldlega rangar. Þegar horft er inn í fjármálaáætlun, sem við eigum eftir að ræða hér síðar í dag, kemur þetta alveg skýrt fram. Þetta blasir við. Árið 2025, í síðustu fjárlögum síðustu ríkisstjórnar, voru framlög til samgöngu- og fjarskiptamála 72 milljarðar. Á næsta ári verða þau 76,3. Það munar 4,2 milljörðum. Það sem er verra, virðulegur forseti, er að þetta fer lækkandi (Forseti hringir.) sem nemur 1,4 milljörðum í fjármálaáætlun. Þetta er aukningin sem hæstv. ríkisstjórn ætlar að setja í samgöngumál til ársins 2031. Þetta segir fjármálaáætlun. Og eins og við vitum (Forseti hringir.) sem höfum tekið þátt í umræðu um fjármálaáætlun þá má ekki breyta henni.