samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég er ánægð með að samgönguáætlun sé að hleypa stórauknum krafti í vegaframkvæmdir í landinu sem nýtast bæði fyrir íbúa og atvinnulíf úti um land allt. En ég vil vekja sérstaklega athygli á einbreiðum göngum sem við búum við enn í dag og að stjórnvöld og hæstv. ráðherra horfi til þess að það þarf sérstaklega að líta til þess hve stórhættuleg einbreið jarðgöng eru. Ég þekki það mætavel frá Vestfjörðum. Vestfjarðagöngin eru tveir stórir, einbreiðir leggir og þar er rússnesk rúlletta á hverjum degi þar sem miklir þungaflutningar eru, stórar rútur úr skemmtiferðaskipunum og aukin slysahætta eins og var fyrir rúmu ári síðan þegar rúta brann með fleiri tugi farþega innan borðs rétt fyrir utan gangamunnann. Enginn veit hvernig það hefði endað hefði hún verið inni í göngunum. Ég lenti reyndar sjálf í alvarlegu umferðarslysi fyrir nokkrum árum í þessum einbreiðu göngum. Ég bið þess vegna þingheim að horfa til þess að það þarf að taka til hendinni þar fyrr en seinna.