157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:15]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hér hafa nefnt að samgönguáætlun er gríðarlega mikilvægt tól og svo sannarlega ætluð til þess að skapa samfellu og fyrirsjáanleika í framkvæmdum á Íslandi. Þá þýðir ekki að kúvenda milli áætlana og ég held að við verðum að sætta okkur við það hér að það er ekki skynsamleg lausn.

Einnig vil ég nefna að við eigum hellingsverk eftir óunnið því að þó að hér sé verið að horfa til einhverra örfárra ára í fjármögnun á þessum framkvæmdum þá þarf meira. Það þarf miklu meira og við þurfum að vinna hart að því að þeir fjármunir verði til og þeim sé skynsamlega ráðstafað. Það er okkur eiginlega til vansa að við getum ekki haldið betur utan um þessar ferjur sem við eigum og að við skulum standa frammi fyrir vandamálum á hverju einasta ári, að geta ekki leyst úr samgöngumálum Vestmannaeyinga og núna þeirra sem treysta á Baldur á Breiðafirði.