samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Mig langar að taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni varðandi það hversu lítið samræmi við erum að sjá með aukinni gjaldtöku og varðandi þær auknu fjárfestingar sem við þurfum að horfa á. Mig langar að undirstrika að innviðafélagið gerir ráð fyrir umtalsverðri gjaldtöku sem á eftir að útfæra hvernig spilast á milli landsvæða. Það er gríðarlega mikilvægt að hún sé samræmd, það sé gegnsæi og við séum ekki að sjá það sem enn eitt lagið í þeirri óvissu um hvað það muni raunverulega kosta venjulegt fólk að keyra á vegum landsins.
Ég vil einnig taka undir með hv. þingmönnum sem hafa talað um þennan fyrirsjáanleika. Hvað myndi hæstv. ríkisstjórn finnast um það ef það kæmi önnur ríkisstjórn til valda bara strax á næsta ári sem myndi setja Fljótagöng út af borðinu og fara í einhvern annan valkost? Ég segi þetta vegna þess að við sjáum það öll, við vitum öll að um leið og eitthvað fer á áætlun þá fara fjárfestingar í þá átt (Forseti hringir.) og þá skiptir svo miklu máli að fyrirsjáanleiki fyrir íbúa og atvinnulíf sé til staðar. Ég ætla að láta þetta duga en get tekið undir varðandi ferjumálin og annað sem hefur verið komið inn á hér líka.