samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Skattlagning þessarar ríkisstjórnar er ekki að skila sér til samgöngubóta. Í henni er t.d. ekkert tekið á samgönguvanda Vestmannaeyinga. Þeir heyra aðeins orð og orðagjálfur en engar efndir. Ekkert fé er lagt í rannsóknir á jarðlögum milli lands og Eyja, á hugsanlegri gangaleið. Ekkert fé er til að lagfæra eða ljúka Landeyjahöfn. Ekkert fé er til endurnýjunar á ferjum fyrr en á næsta eða þarnæsta kjörtímabili. Í þeim málum er algjört ófremdarástand um allt land; á Breiðafirði, Eyjafirði og til Vestmannaeyja. Ferjan til Vestmannaeyja annar ekki eftirspurn þegar hún þó gengur á milli lands og Eyja. Það er ekkert tekið á samgönguvanda Vestmannaeyja sem hefur verið mjög til umræðu undanfarnar vikur.