157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:19]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér sat um árabil ríkisstjórn sem lét vegina okkar grotna niður og hafði ekki döngun í sér til að samþykkja nema eina samgönguáætlun á sjö ára tímabili. Þau kusu kyrrstöðu í stað þess að taka erfiðar ákvarðanir um forgangsröðun og þau gátu ekki komið einum einustu jarðgangaframkvæmdum af stað á þessu tímabili. Nú standa þau hérna og kveinka sér þegar verið er að rjúfa þessa kyrrstöðu, þegar verið er að stórauka framlög til viðhalds á vegum og koma þjóðþrifaverkefninu af stað. Og af því að hér er talað um gjaldtöku af ökutækjum þá er kannski ágætt að taka það fram að eitt af verkefnum þessarar ríkisstjórnar hefur einmitt verið að skrúfa niður þá miklu gjaldtöku sem gert var ráð fyrir í áætlunum fyrri ríkisstjórnar. Ef fjármálaáætlanir þessarar ríkisstjórnar og þeirrar síðustu eru bornar saman kemur í ljós að fólkið sem gólar hérna hvað hæst um skattheimtu stefndi sjálft að miklu öfgafyllri gjaldtöku af ökutækjum en núverandi ríkisstjórn hefur nokkurn tíma ráðist í (Forseti hringir.) eða stefnir að í sínum fjármálaáætlunum. (Gripið fram í: Ha?)

Ég segi já við þessari samgönguáætlun. Þetta er góður dagur fyrir Ísland. Ný forgangsröðun, nýir tímar. Góður dagur fyrir Ísland. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)