samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég held að það skipti ekki máli þó að menn hækki röddina. Það sem þeir segja verður ekki sannara við það. Ég hvet hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til að kanna hversu margar samgönguáætlanir voru lagðar fram á tímabilinu 2017–2024 og samþykktar. Sú síðasta sem var lögð fram kemur aftur fram hér nema verkefnunum er seinkað. Peningarnir eru teknir út, eins og ég lýsti hér áður. Staðreyndin er sú, og það sjá allir sem hlusta á þetta mál, að það vantar fjármuni inn í þetta. Ef ríkisstjórnin hefði staðið við það að setja veiðigjöldin, vörugjöldin og hækkunina á kílómetragjaldinu, sem eru 18,3 milljarðar, þá værum við á góðum stað. Þá væri þetta fjármagnað. Þá væri hægt að gera ýmislegt af því sem hér er á óskalistanum í breytingaskjali meiri hlutans. Staðreyndin er hins vegar sú að það bættust við 7 milljarðar og þeir fóru allir í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er eina aukningin. Öðru er verið að draga úr og afleiðingin er seinkun á framkvæmdum á sömu samgönguáætlun og var lögð fram 2023.