innviðafélag.
Virðulegur forseti. Það er áfram með væntingastjórnunina. Þetta mál sem við göngum til atkvæðagreiðslu um núna er að mjög mörgu leyti vanbúið og ekki hugsað til enda, ýmsir þræðir sem þar þarf að hnýta. Miðað við það hversu mikilvægt þetta mál er með tilliti til samgönguáætlunar þá er ekki annað hægt en að hvetja þá ráðherra sem fara með annars vegar innviðafélagið og hins vegar samgönguáætlun til að setjast hið snarasta niður að þessum málum afgreiddum hér í dag, eins og stefnir í, með það fyrir augum að það birtist landsmönnum raunsæ mynd af því sem fram undan er, bæði hvað framkvæmdir varðar, skipulag innviðafélagsins og það með hvaða hætti gjaldtaka er að breytast í grundvallaratriðum fyrir akstur og notkun ökutækja hér á Íslandi.
Ég mun sjálfur sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu en ég hvet hæstv. ráðherra til að huga að þessu því að nóg er um vonda væntingastjórnun í því sem fyrir okkur liggur hér á þessum síðustu dögum þingsins.