innviðafélag.
Virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn hefur nú þegar stórhækkað álögur á ökutækjaeigendur á Íslandi; kílómetragjaldið, kolefnisgjöld og hækkun á vörugjöldum á ökutækjum og nú á að stofna félag. Ég er fylgjandi stofnun innviðafélags, ég er fylgjandi því að við fáum tekjur af samgöngumannvirkjum með því að rukka veggjöld. En þá verður líka að lækka eitthvað á móti. Það á að bæta veggjöldum í innviðafélaginu ofan á kílómetragjaldið, kolefnisgjöldin og vörugjöldin á ökutækin. Í dag erum við að rukka 79 milljarða af ökutækjaeigendum og að meðaltali á framkvæmdaáætlun samgönguáætlunar eru þetta 72,3 milljarðar sem við erum að eyða en það á samt að bæta við. Það er þess vegna, virðulegur forseti, sem ég mun verða á gulu í dag.