157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:41]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um þær breytingar sem eru hér á stofnun innviðafélags. Þetta spilar auðvitað svolítið saman við samgönguáætlun sem við vorum rétt í þessu að samþykkja í þessum sal. Þingflokkur Viðreisnar styður stofnun innviðafélags heils hugar. Ég held að það séu mjög spennandi tímar fram undan í því hvernig við getum tryggt það að hér verði farið í nauðsynlegar stórframkvæmdir. Ég hef verið hugsi yfir því hvers vegna við höfum ekki fyrir löngu stigið þetta skref. Við höfum góða reynslu af Spöl og hvernig Hvalfjarðargöngin voru gerð á sínum tíma. Við finnum það svo út um allt hversu sárlega við þurfum á því að halda að hafa getu til að fara í stórframkvæmdir af þessum toga. Ég er mjög spennt yfir því að sjá hvernig þetta félag mun þróast og treysti því að það verði farsælt í sínum störfum.