157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:46]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ef einhver hefur verið í vafa um að það sé óljóst hvað felist í þessu innviðafélagi þá þarf sá hinn sami bara að hlusta á atkvæðaskýringar meiri hlutans. Það er bara augljóst að meiri hlutinn hefur ekki hugmynd um það hvað þetta innviðafélag á að gera. Svo sannarlega er þetta ekki Spölur. Svo sannarlega er þetta ekki það sem lýst er í áliti meiri hluta fjárlaganefndar. Það liggur alveg fyrir. Ég get ekki annað séð en að við séum að stefna á sumarþing, ég er alveg tilbúinn í það, ef við eigum að vinna þetta hér á milli umræðna í hv. fjárlaganefnd. Það liggur alveg fyrir. Ef meiri hlutinn er að tala fyrir því að vinna þetta þannig að það virki og sómi sé að og ég tala nú ekki um einhverja sátt, þá erum við að tala um sumarþing. Það liggur alveg fyrir. Þetta var klárað á hálftíma út úr nefndinni. Meirihlutaálitið er fullt af misskilningi um eigið mál. Allar atkvæðaskýringar stjórnarliða eru þess eðlis að það er augljóst að það er engin þekking á því hvað felst í þessu og þetta verður ekki klárað á neinum hálftíma í hv. fjárlaganefnd, svo mikið er víst.