157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:09]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F):

Virðulegi forseti. Mig langar að fara hér yfir minnihlutaálit 2. minni hluta fjárlaganefndar vegna fjármálaáætlunar. Við erum búin að ræða töluvert þessa fjármálaáætlun en ef ég á að lýsa minni skoðun og í raun og veru reyna að kjarna hvernig þetta blasir við þeim sem hér stendur, hvað hér er verið að gera, þá er þetta einhvern veginn á þá leið: Nú vitum við það og sjáum fyrir utan þinghúsið að hér er sól og hiti og ég er alveg viss um að það eru mjög margir sem eru að fara að hugsa sér til hreyfings hvað varðar að byggja sólpalla, svo dæmi sé tekið. Sólpallar eru ekki ódýr framkvæmd og því mikilvægt að fólk geri áætlanir og kostnaðaráætlanir og reyni að meta kostnaðinn við sínar framkvæmdir þannig að það fari ekki illa. Ef viðkomandi kemur nú með kostnaðaráætlun fyrir nýjan sólpall og ber undir heimilisfólkið og segir: Ja, svona er áætlunin og miðað við stöðu heimilisins í dag þá er alveg ljóst að við munum hafa efni á þessum sólpalli — ja, sko, reyndar er það þannig að allt efnið hefur hækkað um 30% og útseld vinna hefur hækkað um 50% en ef við setjum það ekki inn í áætlunina þá munum við hafa efni á framkvæmdinni.

Þetta er nákvæmlega það, virðulegur forseti, sem er að kristallast í þessari fjármálaáætlun sem við höfum fyrir framan okkur. Við erum með áætlun sem gerir ráð fyrir því að við munum ná hallalausum fjárlögum 2027, á næsta ári, og hæstv. ríkisstjórn hefur farið mikinn í orðræðu um það að þetta sé haldreipi ríkisstjórnarinnar í baráttunni við vexti og verðbólgu. Við erum búin að spyrja að því ítrekað í þessum þingsal og kalla eftir aðgerðum og viðbrögðum frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og hæstv. forsætisráðherra en svörin eru alltaf á eina leið: Jú, við ætlum að ná hallalausum fjárlögum 2027, ári fyrr en síðasta ríkisstjórn. Það er útspil ríkisstjórnarinnar, það er trompið, það er lausnin á að leysa hér verðbólguvandann, halda sig við planið, virðulegur forseti. Hve oft höfum við tekið umræðu í þessum þingsal um planið góða og hvert planið góða er raunverulega farið? Planið er farið út um gluggann fyrir löngu. Það vita allir sem hér eru inni. Það vita allir sem hafa lesið greiningar bankanna, greiningar Hagstofunnar, greiningar Seðlabankans og horft í þróun efnahagsmála á Íslandi til næstu missera. Það er öllum ljóst að þetta plan er farið út um gluggann fyrir löngu síðan, nema hæstv. ríkisstjórn. Hún hangir á því eins og hundur á roði, neitar að gera á því breytingar og leggur hér vísvitandi fram fjármálaáætlun sem er röng.

Það er ábyrgðarhlutur, virðulegur forseti, að koma svona fram við þingið og þjóðina, að segja það í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar, þar sem þetta er talið upp, þeir liðir sem meiri hluti fjárlaganefndar veit eftir síðustu spá Seðlabanka Íslands að eru rangir, veit að munu ekki rætast samkvæmt fjármálaáætlun, skrifar það inn í nefndarálit en segir svo: Heyrðu, nei, við ætlum að halda okkur við planið vegna þess að við erum að fara að ná hallalausum fjárlögum 2027. Jú, vegna þess að ef við myndum náttúrulega breyta áætluninni er ljóst að sá draumur er farinn og við ætlum ekki að sitja uppi með það. Við ætlum ekki að þurfa að svara fyrir það af hverju við erum ekki að ná þeim markmiðum sem við höfum stefnt að, eina markmiðinu, eina vopninu í baráttunni við verðbólguna sem við höfum séð hækka og hækka og vaxtastigið hefur farið upp, virðulegur forseti. Vextir eru að hækka og er spáð að þeir muni hækka aftur í ágúst. Við erum að sjá að það er allt sem bendir til þess að forsenduákvæði kjarasamninga muni bresta í ágúst.

Og hvað gerir ríkisstjórnin? Hún er hér með gullið tækifæri til þess að koma með leiðarvísi til næstu ára um hvernig á að bregðast við vandanum, hvaða leiðir á að fara, hvar á að skera niður, hvernig á að ná aðhaldinu, hvernig á að bregðast við minnkandi hagvexti, hvernig á að bregðast við hækkandi atvinnuleysi, hvernig á að bregðast við því að verðbólguvæntingar eru hærri og fara hækkandi, hvernig á að bregðast við ástandinu á fasteignamarkaðnum. Svo gæti ég haldið áfram lengi lengi. Svörin í bókinni góðu, fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, eru því miður engin og það er alveg ljóst að hæstv. ríkisstjórn er búin að henda inn handklæðinu í þessu máli. Það er ekki hægt að horfa á þetta með öðrum hætti en að hér sé um algera uppgjöf að ræða af hálfu stjórnvalda.

Það eru um tíu ár síðan lög um opinber fjármál tóku gildi og það hefur eiginlega ekki gerst fyrr en nú að meiri hluti fjárlaganefndar viðurkenni og raunar staðfesti breyttar forsendur fjármálaáætlunar en telji ekki tilefni til að uppfæra afkomumarkmiðin. Meiri hlutinn staðfestir þannig breytta þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands, breyttar forsendur um kostnað vegna atvinnuleysistrygginga og hærra atvinnuleysis en áætlunin gerði ráð fyrir. Þannig kemur fram að breytingar á frumvarpi um atvinnuleysistryggingar leiði til þess að gjöld ríkissjóðs lækki ekki jafn mikið og gert var ráð fyrir. Það munar um 1,2 milljarða árið 2027 og 3,7 milljarða árlega til loka tímabilsins.

Það voru mjög áhugaverðar umræður í morgun, virðulegur forseti, þar sem framsögumaður, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, taldi þetta það litla upphæð að þetta skipti engu máli í fjármálaáætlun og það hefði ekkert að segja þó að við myndum breyta þessari tölu, sem er bara ein af mörgum sem þarf að breyta. En bíddu, hver er staðan? Ef 1,2 milljarðar skipta engu máli og eru bara eins og sandkorn á breiðri strönd, er þá nokkuð að marka 1,1 milljarð sem á að vera tekjuafgangur ríkissjóðs á næsta ári?

Virðulegur forseti. Þarna fara ekki saman hljóð og mynd og menn eru að reyna að mála upp einhverja mynd hér sem er bara engin innstæða fyrir og á ekki stoð í raunveruleikanum, því miður. Meiri hlutinn bendir einnig á að Seðlabankinn spái nú 0,7% meira atvinnuleysi en forsendur áætlunarinnar miðuðust við og að hvert prósentustig atvinnuleysis geti verið á milli 9–10 milljarðar í útgjöldum ríkissjóðs. Tekjur ríkisins verði enn fremur umtalsvert minni en ráð var gert fyrir vegna minni efnahagsumsvifa. Þrátt fyrir þetta allt leggur meiri hlutinn til að fjármálaáætlunin verði samþykkt óbreytt. Annar minni hluti telur þá niðurstöðu ranga og að hún gangi gegn ákvæði laga um opinber fjármál. Skortur á heildstæðu mati er ekki rök fyrir því að samþykkja áætlunina óbreytta. Ófullnægjandi gögn kalla á uppfært afkomumat og uppfærða útreikninga áður en Alþingi tekur afstöðu til markmiða áætlunarinnar.

Við erum hér í nefndaráliti sem ég hvet nú hv. þingmenn til að kynna sér vel og mig langar að fara aðeins yfir nokkra þá þætti sem meiri hlutinn sjálfur er að benda á í sínu áliti en telur ekki þörf á að uppfæra í áætluninni. Eins og ég sagði áðan er afkomumarkmið ríkissjóðs fyrir árið 2027 1,1 milljarður og 6,9 árið 2028. En ef við skoðum tölurnar þá er minni sparnaður vegna atvinnuleysistrygginga. Hann er áætlaður í mínus, 1,2 milljarðar á árinu 2027 og 3,7 á árinu þar á eftir. Þar með er markmiðið um hallalaus fjárlög farið. Það er farið í fyrsta punkti. Síðan er rætt hér um hærra atvinnuleysi og aukin útgjöld vegna hærra atvinnuleysis. Þetta er áætlað svona 6–7 milljarðar í mínus og enn eykst hallinn. Við erum að tala um lægri hagvöxt og minni skatttekjur þar af leiðandi. Þetta eru þær forsendur sem við erum með hér og erum að reikna út, eru þær fjárhæðir sem við erum að reikna út frá tekjugrunni áætlunarinnar sjálfrar. En lægri hagvöxtur mun sennilega skila okkur 5–7 milljörðum í mínus, áætluðum, og enn eykst hallinn, þannig að áætluð afkoma án verðbólgu og vaxtaáhrifa getur verið svona 11–14 milljarðar. En til viðbótar, virðulegur forseti, ef þú tekur verðbólguna inn í sem og hærri vexti, bætast við 5–8 milljarðar og þá er nú staðan orðin sú að árið 2027, miðað við það sem meiri hlutinn segir sjálfur í sínu nefndaráliti, getum við gert ráð fyrir því að halli ríkissjóðs, miðað við fjármálaáætlun og nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar, verði á bilinu 16–22 milljarðar. Þetta, virðulegur forseti, eru svo litlar tölur og þetta skiptir svo litlu máli í stóra samhenginu að meiri hluti fjárlaganefndar telur ekki þörf á því að uppfæra áætlunina, enda myndi það þýða að haldreipið í baráttunni við vexti og verðbólgu um hallalaus fjárlög væri farið út í hafsauga.

Annar minni hluti telur að umfjöllun um breyttar forsendur fjármálaáætlunar snúist ekki aðeins um pólitískt mat á stöðu ríkisfjármála. Hún varðar einnig þær efnislegu kröfur sem lög um opinber fjármál gera til fjármálaáætlunarinnar, undirbúnings hennar og framsetningar. Skv. 6. gr. laga um opinber fjármál skal stefnumörkun í opinberum fjármálum byggjast á fimm grunngildum, þ.e. sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Varfærni miðar samkvæmt ákvæðinu að hæfilegu jafnvægi milli tekna og gjalda og að ekki séu teknar ákvarðanir eða skapaðar aðstæður sem geta haft ófyrirséðar og neikvæðar afleiðingar. Gagnsæi felst í því að það séu sett auðsæ og mælanleg markmið um þróun opinberra fjármála. Af 5. gr. laganna leiðir jafnframt að fjármálaáætlun skal byggð á fjármálastefnu og traustu mati á efnahagshorfum. Þegar frávik verða frá forsendum sem máli skipta ber að greina þau og meta áhrif þeirra á stefnumörkun, afkomu og framkvæmd. Fjármálaáætlun er ekki aðeins formleg áætlun um fjárhæðir heldur stjórntæki sem gefa á Alþingi raunhæfa mynd af stöðu ríkisfjármála hverju sinni.

Afdráttarlaus krafa kemur þó fram í 8. gr. laganna um hagrænar forsendur stefnumörkunar. Þar segir að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggjast á traustum forsendum og gögnum sem unnin eru hlutlægt og kerfisbundið og opinberum hagtölum og þjóðhagsspám þar sem tekið er mið af fjárhagslegum og efnahagslegum áhrifum og áformum stjórnvalda. Það skal einnig gera grein fyrir þeim forsendum sem stefnumörkunin byggist á. Hér er ekki um leiðbeinandi grunngildi að ræða, virðulegur forseti. Hér er um fortakslausa skyldu að ræða og að mati 2. minni hluta er það kjarni málsins.

Fyrir liggur að ný þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands víkur verulega frá þeim forsendum sem fjármálaáætlunin byggist á. Meiri hlutinn staðfestir það sjálfur þegar fjármálaáætlun er engu að síður lögð fyrir Alþingi til samþykktar án þess að forsendur séu uppfærðar í samræmi við nýjustu opinberu þjóðhagsspá og án þess að lögð sé fram greining sem sýnir hvernig breyttar forsendur hafi áhrif á afkomu og helstu stærðir. Er það afstaða 2. minni hluta að áætlunin uppfylli ekki þá skyldu sem mælt er fyrir um í 8. gr. Hún byggir þá ekki lengur á þeim traustu og uppfærðu gögnum sem ákvæðið áskilur.

Annar minni hluti telur að sú staða sem uppi er nú sé verulega varhugaverð í þessu ljósi. Meiri hlutinn viðurkennir að forsendur efnahagsmála hafi breyst og heildstætt mat á áhrifum þeirra liggi ekki fyrir en leggur þrátt fyrir það til að áætlunin verði samþykkt óbreytt. Það eru vinnubrögð sem er ekki hægt að sætta sig við. Samanlagt hníga að því sterk rök að með skorti á uppfærðum gögnum og óraunsæjum markmiðum fjármálaáætlunar séu lög um opinber fjármál í besta falli hunsuð, ef ekki brotin. Að samþykkja áætlunina óbreytta, þegar fyrir liggur að forsendur hennar hafa veikst og hvorki uppfærð gögn né greiningar á áhrifum breytinganna liggja fyrir, samræmist hvorki fortakslausri skyldu 8. gr. um traust og uppfærð gögn né grunngildum 6. gr. um varfærni og gagnsæi. Að lágmarki leikur verulegur vafi á því að áætlunin uppfylli þær kröfur sem lögin gera. Þeim vafa ber að eyða áður en Alþingi greiðir atkvæði, virðulegur forseti, ekki á eftir.

Hafa ber sérstaklega í huga að hallalaus fjárlög árið 2027 eru eitt lykilmarkmiða efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Uppfærðar forsendur benda þó til þess að afgangurinn sé þegar horfinn, eins og ég fór yfir hér í upphafi. Því verður Alþingi að fá uppfært afkomumat og greiningu á því hvernig núverandi aðstæður, þrátt fyrir allt, breyta ekki niðurstöðunni um hallalausan rekstur ríkisins árið 2027 áður en áætlunin er samþykkt. Síðast en ekki síst er rétt að taka fram að þrálát verðbólga sé eitt af lykilverkefnum núverandi ríkisstjórnar og gríðarlegir þjóðhagslegir hagsmunir af því að ná henni niður. Öguð ríkisfjármál eru þar grundvallaratriði og þar með raunsæ og ábyrg afkomumarkmið.

Annar minni hluti telur gagnlegt að meta fjármálaáætlun út frá fimm einföldum viðmiðum sem leiðir af kröfum um traustar forsendur, gagnsæi, varfærni og skýra mynd. Það eru afkoma, forsendur, álagsþol, almennur varasjóður og framkvæmd. Að mati 2. minni hluta uppfyllir fjármálaáætlunin ekki þessi skilyrði eins og hún liggur fyrir. Vandinn er ekki aðeins sá að einstakar töflur hafa breyst, vandinn er sá að Alþingi er beðið um að samþykkja áætlun sem byggist á markmiðum um hallalausa afkomu án þess að sýnt sé með gagnsæjum hætti hvernig því markmiði verður náð miðað við breyttar forsendur.

Annar minni hluti telur líka sérstaklega mikilvægt að horft sé til þess að afkoma ríkissjóðs er mjög viðkvæm fyrir þróun vaxta og verðbólgu. Fjármálaáætlun sýnir að vaxtagjöld A1-hluta ríkissjóðs eru áætluð 143,5 milljarðar kr. árið 2027 og 151,8 milljarðar kr. árið 2028. Til samanburðar er áætlaður afgangur aðeins 1,1 milljarður kr. árið 2027 og 6,9 milljarðar kr. árið 2028. Þetta þýðir að lítið frávik í vaxtakostnaði eitt og sér getur haft veruleg áhrif á niðurstöðu ársins. Fjármálaáætlun sýnir jafnframt að verðbætur eru áætlaðar 23,7 milljarðar kr. árið 2027 og 23,3 milljarðar kr. árið 2028. Í ljósi þess skal hafa í huga að verðbólguhorfur eru miklum mun verri nú en áður, m.a. að mati Seðlabankans. Slíkir liðir skipta máli þegar afkomumarkmiðið hvílir aðeins á 1,1 milljarði í afgang. Annar minni hluti telur því nauðsynlegt að leggja fram næmnigreiningu á áhrifum vaxta og verðbólgu á afkomu ríkissjóðs áður en áætlunin er samþykkt.

Við viljum líka benda á það, virðulegur forseti, að það er ekki nægilegt að horfa aðeins til heildarafkomu ársins. Alþingi þarf einnig að fá skýra mynd af sjóðstreymi, lánsfjárþörf, verðbótum og skuldaþróun. Fjármálaáætlun sýnir að árið 2027 eru skuldir, hreyfingar, áætlaðar 107,8 milljarðar og lántökur 158,1. Árið 2028 eru skuldir, hreyfingar, áætlaðar 2,7 milljarðar og lántökur 47,7. Þetta skiptir máli vegna þess að á sama tíma og fjármálaáætlun sýnir 1,1 milljarð í afgang árið 2027 er ríkissjóður áfram með verulega fjármagnsþörf og fjármögnunarþörf. Hreinn lánsfjárjöfnuður ársins 2027 er neikvæður um 97,8 milljarða kr. Hallalaus rekstur er ekki það sama og engin fjármögnunarþörf.

Fjármálaáætlunin sýnir að skuldir ríkissjóðs hækka úr 1.944 milljörðum í 2.361 árið 2031 eða um 416,9 milljarða kr. á tímabilinu. Ég ætla að lesa þetta aftur, virðulegur forseti: Þá sýnir fjármálaáætlunin að skuldir ríkissjóðs hækka úr 1.944 milljörðum kr. í 2.361 milljarð árið 2031 eða um 416,9 milljarða kr. á tímabilinu. Svo tala menn hér um að það sé verið að lækka skuldir ríkisins. Hvað höfum við oft heyrt það hér í þessum þingsal að ríkisstjórnin sé að ná stórkostlegum árangri í að lækka skuldir ríkissjóðs miðað við verga landsframleiðslu? Já, rétt, en það sem er raunverulega verið að gera hér, virðulegur forseti, er að það er verið að hækka skuldir ríkissjóðs um 21%. Þetta er 21% hækkun. Ef forsendur veikjast frekar getur lánsþörfin aukist, vaxtabyrðin þyngst og skuldaþróun orðið óhagstæðari en áætlunin gerir ráð fyrir. Það er rétt að taka fram að aukning skulda tengist vitanlega að miklu leyti verðbótum.

Mig langar líka aðeins að tala um stöðugleikareglu, virðulegur forseti. Annar minni hluti telur að lítið hald sé í að vísa til þess að aukning útgjalda sé í samræmi við eða rúmist innan stöðugleikareglunnar. Stöðugleikareglan hefur vissulega hlutverk við að hemja raunvöxt útgjalda en hún kemur ekki í stað uppfærðs mats á tekjum, gjöldum og vaxtakostnaði, skuldahreyfingum og fjárhagslegu svigrúmi þegar efnahagsforsendur hafa breyst. Ef hagvöxtur verður minni, ef atvinnuleysi verður meira, verðbólga þrálátari og vaxtakostnaður hærri en gert er ráð fyrir getur fjármálaáætlun verið innan tiltekinnar útgjaldareglu en samt byggst á afkomumarkmiði sem ekki er lengur raunhæft. Annar minni hluti telur því nauðsynlegt að stöðugleikareglunni fylgi skýr afkomugreining/brú og næmnigreining þegar forsendur breytast með þeim hætti sem hér hefur gerst.

Annar minni hluti telur líka mikilvægt að greina með skýrum hætti á milli almenns útgjaldasvigrúms og almenns varasjóðs samkvæmt lögum um opinber fjármál. Almennur varasjóður er ekki almennur pottur til að jafna út veikleika í forsendum fjármálaáætlunar eða fjárlaga fyrir fyrirsjáanleg útgjöld. Þetta skiptir máli því að væri almennur varasjóður á bilinu 2–3% af landsframleiðslu væri meira borð fyrir báru. Skv. 24. gr. laga um opinber fjármál skal í frumvarpi til fjárlaga gera ráð fyrir óskiptum almennum varasjóði til að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg eða óhjákvæmileg og ekki verður unnt að bregðast við með öðrum hætti samkvæmt lögunum. Skal varasjóður nema um 1% af fjárheimildum fjárlaga. Í greinargerð með frumvarpi til laga kemur fram að þessi skilyrði beri að túlka þröngt. Staðreyndin er sú að mörg undanfarin ár hefur almennur varasjóður verið allt of lítill og engan veginn dugað fyrir þeim áföllum sem dunið hafa yfir samfélagið, m.a. í ljósi náttúruhamfara. Það blasir við að hinn almenni varasjóður getur aldrei komið í staðinn fyrir traustar forsendur fjármálaáætlunar en þegar fyrir liggur að hagvöxtur verði minni eða atvinnuleysi meira en gert var ráð fyrir eru þetta ekki lengur ófyrirsjáanleg frávik í þeim skilningi sem varasjóðsákvæðið byggir á. Slík frávik kalla á uppfært afkomumat, skýra forgangsröðun eða breyttar fjárhagslegar ráðstafanir.

Það skiptir máli að í fjármálaáætlun virðist ekki vera gert ráð fyrir sérstökum varasjóðum einstakra málaflokka í komandi fjárlagafrumvarpi sem sjálfstæðu áfallasvigrúmi. Varasjóðir málaflokkanna geta að hámarki verið 2% af fjárheimild en það munar um slíkt svigrúm þótt lítið sé þegar stefnt er að hallalausum fjárlögum. Óvænt og ófyrirséð útgjöld vegna heilbrigðismála, atvinnuleysis, almannavarna, náttúruhamfara, innviða eða þjónustu við íbúa þurfa annaðhvort að rúmast innan almenns varasjóðs með tilfærslum innan fjárheimilda eða með sérstakri fjárheimild. Allt bendir því til þess að ríkisstjórnin sækist frekar í fjárheimildir fyrir reksturinn 2027 með fjáraukalögum. Slíkt er þó ekki til eftirbreytni. Niðurstaðan er sú að í ljósi þess hversu rýr almennur varasjóður er samkvæmt fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 og sé litið til notkunar hans undanfarin ár er ljóst að enn meiri áherslu verður að leggja á raunsæi afkomumarkmiða fjármálaáætlunar en ella.

Virðulegur forseti. Ég er að verða kominn hér að leiðarlokum, tíminn er að hlaupa frá mér. Ég er búinn að renna að mestu leyti yfir þetta nefndarálit mitt en mig langar að enda á því sem við endum á í okkar nefndaráliti, að 2. minni hluti getur ekki fallist á að rétt vinnubrögð við breyttar forsendur séu að samþykkja fjármálaáætlun óbreytta og vísa mati á áhrifum til haustsins og þar með bíða framlagningar fjárlagafrumvarps. Slík afgreiðsla samræmist ekki þeim kröfum sem gera verður til varfærni, gagnsæis, trausts og hagrænna forsenda samkvæmt lögum um opinber fjármál. Trúverðugleiki opinberra fjármála byggist ekki á því að halda óbreyttu markmiði þegar forsendur breytast. Hann byggist á því að sýna hvernig markmiðunum verður náð við breyttar aðstæður.

Annar minni hluti viðurkennir að forsendur áætlunarinnar hafi breyst. Það sem vantar er því afkomugreining frá þeim forsendum sem fjármálaáætlunin byggðist á við framlagningu til þeirra aðstæðna sem nú liggja fyrir. Án slíkrar greiningar er Alþingi í raun og veru beðið um að samþykkja hallalaus markmið án þess að það sé sýnt fram á það hvernig því verði náð. Að mati 2. minni hluta liggja eftirfarandi gögn ekki fyrir en eru þó forsenda þess að unnt sé að taka efnislega afstöðu til markmiðs fjármálaáætlunar:

1. Uppfært afkomumarkmið fyrir 2027 og 2028.

2. Næmnigreining vegna helstu áhættuþátta, svo sem hagvaxtar, verðbólgu, vaxta og atvinnuleysis.

3. Mat á áhrifum breyttra forsenda á tekjur ríkissjóðs, útgjöld vegna m.a. atvinnuleysis, vaxtakostnað, verðbætur og fleira.

4. Greining á stöðu almenns varasjóðs.

5. Mat á því hvernig óvænt útgjöld innan einstakra málefnasviða verði fjármögnuð.

6. Skýrari tengsl fjármálaáætlunar við atvinnustefnu, samgönguáætlun og fyrirhugað innviðafélag.

Virðulegur forseti. Með vísan til alls framangreinds leggur 2. minni hluti til að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar. Annar minni hluti telur að fjármálaáætlun eigi ekki að vera afgreidd fyrr en fram hafa komið þau gögn sem talin eru upp hér að framan þannig að Alþingi geti tekið afstöðu til hennar á uppfærðum og traustum forsendum.